Ægir - 01.04.1989, Blaðsíða 10
174
ÆGIR
4/8?
lögðust niður 1980 er pólsk stjórn-
völd bönnuðu innflutning á salt-
aðri síld í sambandi við aðgerðir
sem þá var grípið til vegna vax-
andi efnahagsöngþveitis í landinu.
Árið 1985 tókst að selja Pól-
verjum takmarkað magn af um-
framframleiðslu ársins á undan.
Líkur eru á því að unnt verði að
selja Pólverjum nokkurt magn á
komandi vertíð sem hluta af and-
virði skipa, er Pólverjar smíða fyrir
Islendinga. Pólverjar fiafa síðustu
tvö árin keypt töluvert af saltaðri
síld frá Noregi, en norsku síldar-
saltendurnir hafa verið fremur
tregir að framleiða upp í þá sölu-
samninga sökum þess hve verðið
hefir verið lágt. Hollendingar hafa
í nokkur ár selt Pólverjum saltsíld
sem greiðslu upp í hluta af and-
virði skipa, sem smíðuð hafa verið
fyrir þá í Póllandi.
I Bandaríkjunum er takmarkað-
ur markaður fyrir saltaða síld en
hin síðari árin hefir aðeins tekist
að selja þangað óverulegt magn af
íslenzkri saltsíld. Ástæðan er fyrst
og fremst sú, að frá Kanada fá
Bandaríkjamenn síldina á langtum
lægra verði. T.d. fá þeir hverja
flakatunnu frá Kanada á mun
lægra verði en við þurfum að fá
fyrir síldina hausskorna.
Mynd 4
Neyzlusvæbi saltabrar síldar í Evrópu
(Tölustafirnir tákna helztu síldveibisvæbin vib strendur Evrópu)-
Þróun gengismála
Gengisfall Bandaríkjadollars og
svonefnd fastgengisstefna íslenzkra
stjórnvalda hefir komið harðar
niður á saltsíldarframleiðslunni en
nokkurri annarri grein íslenzks
fiskiðnaðar, þar sem 2/3 hlutar
saltsíldarinnar hafa verið seldir í
Bandaríkjadollurum, en svo sem
kunnugt er fara öll viðskipti
íslands og Sovétríkjanna fram í
þeim gjaldmiðli. Sem dæmi um
afleiðingarnar skal hér nefnt að á
útflutningstíma saltsíldar frá ver-
tíðinni 1987 (des. 1987/marz
1988) fengust 7% færri krónur
fyrir hvern Bandaríkjadollar en
þrem árum áður, þrátt fyrir þá
staðreynd að verðlag hér á landi
hafði á sama tímabili hækkað um
tæplega 100%.
Síldarsöltunin
Á töflu 2 er birt yfirlit um síldar-
söltunina á hinum einstöku höfn-
um frá því að veiðar í hringnót
voru leyfðar á ný árið 1975. Á
töflu 3 er birt yfirlit um söltunina á
einstökum söltunarstövðum á
sama tímabili. Á árunum 1975 -
1979 veiddist síldin eingöngu við
suðurströnd landsins en síðan
1980 hefir aðalveiðisvæðið verið
inni á fjörðum austanlands, eins
og söltunartölur einstakra sta^‘
bera með sér.
Tilrauna- og flökunarstöb
Einn er sá þáttur í sambandi '
saltsíldarframleiðsluna sem rétt
að minnast á í þessu yfirliti en P
er rannsókna- og tilraunastarfs ^
sú, sem farið hefir fram á veg
Síldarútvegsnefndar. Árang^1^
af þessari starfsemi hefir ofta1
einu sinni leitt til þáttaskila írnal.
aðsmálum íslensku saltsíldarin113 ,
Hér verður aðeins drepið a P
atriði í sambandi við þessa
raunastarfsemi, sem leitt ha,a
aukinnar framleiðslu nýrra
til'
teg'