Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1989, Page 12

Ægir - 01.04.1989, Page 12
176 ÆGIR 4/89 Á undanförnum 3 árum hefir stööin tekið við um 30 þús. tunnum af saltaðri síld frá söltun- arstöðvunum til ýmiskonar flaka- vinnslu fyrir erlenda markaði og á þessu ári er gert ráð fyrir að um 25 þús. tunnur verði teknar þar til frekari vinnslu af síld frá síðustu haust- og vetrarvertíð. Þegar þeirri vinnslu lýkur n.k. haust má áætla að útflutningsverðmæti þeirrar síldar, sem unnin hefir verið á stöðinni frá byrjun muni aukast um 140 milljónir króna miðað við núverandi gengisskráningu. Eins og ákveðið var, er tilrauna- stöðin var byggð, er gert ráð fyrir að sú framleiðsla, sem þar fer fram nú, flytjist, eftir því sem aðstæður leyfa, til söltunarstöðva, sem aðstöðu hafa til slíkrar vinnslu. Auk flakavinnslunnar fer fram í tilraunastöðinni alhliða rann- sókna- og tilraunastarfsemi í þágu saltsíldarframleiðslu landsmanna. Að hluta til eru rannsóknirnar gerðar í samvinnu og samráði við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, sem í áratugi hefir sinnt ýmsum mikilvægum rannsóknarverk- efnum fyrir Síldarútvegsnefnd. Kælihús Síldarútvegsnefndar í áratugi voru uppi þær skoðan- ir, að fyrir íslendinga, sem fram- leiða meira af saltaðri síld til út- flutnings en nokkur önnur þjóð, væri algjörlega óviðunandi að hafa alls enga möguleika á því að taka til geymslu a.m.k. takmarkað magn af saltaðri síld við viðunandi skilyrði, ef einhver óvænt atvik hindruðu útflutning. Svo einkennilega vildi til að slík staða kom upp fyrri hluta árs 1985, er nýlokið var við byggingu á kælihúsi Síldarútvegsnefndar. Ýmsir saltendur höfðu árið áður - þrátt fyrir aðvaranir Síldarút- vegsnefndar — saltað meira en fyrirframsamningar heimiluðu og reyndist mjög erfitt að fá kaup- endur að þessari umframfram- leiðslu. Síld þessi var flutt í kæli- hús SÚN vorið 1985 og geymd þar við hæfilegt hitastig (3-5 gráður undir frostmarki), þar til kaupendur fundust. Menn voru sammála um að svo til öll Þe;. síld hefði eyðilagzt ef hið nÝ kælihús hefði ekki verið til staðíir' Haustvertíðin 1989 _ Hafrannsóknasto,n I skýrslu ndiidinibUM'“- » unar frá 24. júlí 1988 er lagt Ú leyft verði að veiða allt að 1 þús. tonnum úr íslenzka suf1 gotssíldarstofninum á kom an haustvertíð. í skýrslunni er tekið fram, að sú tala kunn' a verða endurskoðuð eftir þv' 5 ^ niðurstöður frekari rannsókna ge tilefni til. j Erfitt er að spá fyrir um hvernig til kann að takast 111 fyrirframsölu á saltsíldinni á k andi vertíð. Eins og staðan er ^ eru söluhorfur í Svíþjóð og ' landi ekki síðri en á sl. árn staðan verður þó ekki að fullu ^ fyrr en séð verður hve mikil s' arneyzlan verður á sumariev ( tímabilinu, en á þeim árstíma - , hvað mest af íslenzku síldi|in þessurn löndum. . . ( Eins og áður hefir koniið ,ra ^ yfirliti þessu hafa Sovétríkin ve

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.