Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1989, Side 22

Ægir - 01.04.1989, Side 22
186 ÆGIR 4/89 Lárus Jónsson: Veiðar og vinnsla hörpudisks og rækju 1988 Verðmæti rækju og hörpu- diskafurða nam á síðast- liðnu ári 4.630 millj. króna sem nam 9.5% af heildar- verðmæti sjávarvöruframleiðsl- unnar. Þessar greinar eru því enn þrátt fyrir verulegan samdrátt undanfarið í flokki mikilvægustu útflutningsgreina þjóðarinnar, næst á eftir frystum botnfiski og saltfiskafurðum. í því sambandi má geta þess að útflutningur allra loðnuafurða var um 4.000 millj. króna á árinu og síldarafurða um 1200 millj. króna. Mikil umskipti urðu í veiðum og vinnslu hörpudisks og rækju á árinu 1988. í kjölfar verðlækkunar á hörpudiski á árinu 1987 minnk- aði framleiðsla á frystum hörpu- diski þegar á því ári og fór enn mjög minnkandi á síðastliðnu ári. Rækjuveiðin, sem hefur aukist ótrúlega hratt undanfarið, minnk- aði snögglega frá metárinu 1987, þegar hún varð um 38.600 tonn í um það bil 10.000 tonnum minni afla á árinu 1988. Ennfremur lækkaði verð á skelflettri rækju á erlendum mörkuðum nokkuð, þótt verðlækkunin frá metverðinu 1986 hafi fyrst og fremst komið fram þegar á árinu 1987. Hörpudiskveiðin dróst einnig saman 1988 annað árið í röð. Hún varð um 9.650 tonn í samanburði við um 17.000 tonn á árinu 1985, þegar hún varð mest. Útflutnings- verðmæti hörpudiskframleiðsl- unnar nam 236 millj. króna. Ástæðan er vafalaust svipuð og fyrra ár, þ.e.a.s. mjög lágt verð á hörpudiski á Bandaríkjamarkaði, sem hefur verið nánast eina mark- aðssvæði hörpudisks fram til þessa. Verömæti rækju- og hörpu- diskafurða Þróunina í samdrætti framleiðslu rækju- og hörpudiskafurða undan- farin ár má glöggt sjá með því að bera saman verðmæti framleiðsl- unnar á föstu verðlagi. Verðmæti rækju- og hörpudiskafurða varð mest á árinu 1986 eða rúmlega 7100 millj. króna (Verðlag jan. 1989). Þetta voru um 14% l1 heildarverðmæti sjávarvörufra111 leiðslunnar. Árið 1987 nam þettl1 verðmæti um 6.300 millj. °§ ' fyrra tæplega 5.000 millj. á sania verðlagi. (Sjá töflu 2). Þrátt fyr,r þennan mikla samdrátt í fri1111 leiðslu rækju- og hörpudiskafur nam afurðaverðmæti þessara gre ina 9.5% af sjávarvöruframleið5 unni á árinu 1988 og varð mei^ en sem svarar verðmæti al' loðnuafurða svo dæmi sé tek1 (Sjá mynd 1 og töflu 1.). Hörpudiskveidarnar Hörpudiskveiðarnar hafa dreS'- svo mjög saman undanfarin ára Mynd 1 Verðmæti rækju- og hörpudiskafurða í hlutfalli við sjávarvöruframleiðsluna í heild. %

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.