Ægir - 01.08.1989, Blaðsíða 31
426
ÆGIR
8/89 8/89
ÆGIR
427
Happafleyta og farsæll skipstjóri
Wtari röð: Guðni, Matthías, Viðar 2.stýrim. Þórarinn 1. stýrim. Fremri röð: Adólf, Óskar Ægir matsveinn, Sigurjón
skiPstjóri, Árni, Róbert.
Happafleytan Þórunn Sveinsdóttir.
„Aflakóngadekur" var orðatiltæki sem vinsælt varð
í umræðum kringum 1980. Með orðatiltækinu var átt
við að ekki þyrfti endilega að fara saman mikill afli og
það sem í hástemmdum ræðum pólitíkusa er nefnt
þjóðhagsleg hagkvæmni. Afþessum umræðum leiddi
meðal annars að aflagt var áriegt yfirlit í Ægi um afla-
kónga á vetrarvertíð, sem venjulega var birt um mitt
ár. Auk þess sem nokkur eðlisbreyting var talin fylgja
kvótakerfinu, þannig að hæfir aflamenn kepptu ekki
að titlinum „aflakóngur" eða að aflameti, af sama
jöfnuði og fyrr.
Á síðastliðinni vetrarvertíð gerðust þau tíðindi að
einn þekktasti aflamaður landsins, Sigurjón Óskars-
son úr Vestmannaeyjum, og skipshöfn hans á P°r'
unni Sveinsdóttur VE-401, bættu fyrra aflaniet a
vetrarvertíð um 200 tonn. Því hafði verið af mörgu'11
spáð að aflamet Geirfuglsins frá Grindavík, 1740 tonn,
frá árinu 1970 mundi standa um tíma og eilífð, vegna
fyrrnefndra breyttra aðstæðna. Samkvæmt tölum F|SK,
félagsins náði Þórunn Sveinsdóttir að fiska 1932 tonn,
síðastliðinni vetrarvertíð, 1. jan. - 15. maí. Meðtet
aflans var að auki góð, aðrar heimildir segja okkur a
áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur gangi frá aflanun1
fiskikör og ísi aflann þegar þurfa þykir. , .
Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvers vj
þjóðinni er að eiga aflasæla fiskimenn. Grundvo L
8°5>ra lífskjara í landinu er mikill og verðmætur afli,
s^ni dreginn er úr sjó af tiltölulega fáum mönnum. Til
. 8°öir hlutir falli ekki í gleymsku tók Ægir saman
1 lnn pistil um skip og skipstjóra sem hlut eiga að
Urr|raeddu afreki.
M/s hórunn Sveinsdóttir var smíðuð hjá Stálvík hf.
£ Var afhent eigendum í janúar 1971. í upphafi var
I lpib maelt 105 brúttó rúmlestir. 1974 var það lengt,
brl^ Vfirby88t 1 988 lengt a nÝ °8 er nu mælt 154
Eigandi skipsins frá upphafi hefur verið Ós hf. en
helstu aðilar þess eru Óskar Matthíasson útgerðar-
maður og skipstjóri í Vestmannaeyjum og sonur hans
Sigurjón skipstjóri sem hefur verið stjórnandi á skip-
inu frá upphafi á sérlega farsælan hátt. Þess skal þó
getið að Óskar var skipstjóri fyrstu vertíðina og Sig-
urjón stýrimaður, síðan hefur Sigurjón farið með
skipstjórn.
Sigurjón er fæddur í Vestmannaeyjum 3. maí 1945,
sonur hjónanna Óskars Matthíassonar frá Byggðar-
enda og Þóru Sigurjónsdóttur frá Víðidal í Vestmanna-