Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1989, Blaðsíða 56

Ægir - 01.08.1989, Blaðsíða 56
452 ÆGIR 8/89 REYTINGUR Vestur-Þýskaland - Markaður í vexti Útlit er fyrir minnkandi framboð heimamanna á fiski á fisk- mörkuðum í V-þýskalandi þegar líða tekur á haustið. Áttatíu prósent af neyslu Þjóðverja af fiski, kemur erlendis frá og þar af u.þ.b. 50% frá löndum utan Evrópubandalags- ins. Helstu innflutningslöndin og skipting fiskmarkaðarins milli þeirra árið 1988 var sem hér segir: Lönd Markaðshlutdeild Danmörk 25% Noregur 12% Holland 10% ísland 7% Frakkland 5% Pólland 4% Thailand 4% Kanada 3% Færeyjar 3% Bretland 2% Ítalía 2% Spánn 2% Filippseyjar 2% írland 2% Kína 1% Argentína 1% Önnur EB-ríki 1% Önnur lönd 14% Svo sem sést af þessari upptaln- ingu er ísland t'jórða mesta innflutn- ingslandið með 7% hlutdeild af innflutningi sjávarafurða. Aðeins nágrannalönd Þýskalands: Dan- mörk, Holland og Noregur, flytja inn meira. Heildarinnflutningur V- Þjóðverja á sjávarafurðum árið 1988 var að verðmæti 2.150 mill- jónir marka, þannig að eftir nokkru er að slægjast. Samkvæmt aflakvótum ársins 1989 innan landhelgi Evrópu- bandalagsins, hefur leyfilegur afli verið dregin mikið saman frá fyrra ári. Sem dæmi má nefna að í ár er leyfilegt að veiða innan fisk- veiðilögsögu Evrópubandalagsins 375.520 tonn af þorski og 112.130 tonn af ýsu. Árið 1988 var hins- vegar leyfilegur afli þessara teg- unda: 426.270 tonn af þorski og 214.430 tonn af ýsu. Hvað V-Þýskaland snertir er sam- dráttur afla mikill og í flestum helstu tegundum sem þeir neyta. Hér á eftir fer tafla yfir breytingar á leyfi- legum afla þýskra skipa á nokkrum helstu fisktegundum: Tegund 1988(tn) / 989(tn) Mism. Þorskur 48.835 38.530 -10.305 Ufsi 22.250 21.640 -610 Karfi 64.990 62.535 -2.445 Makríll 24.300 21.170 -3.130 Lýsa 3.130 2.970 -160 Ýsa 8.290 2.320 -5.970 Skarkoli 10.370 10.940 4-570 Síld 71.240 75.225 4-3.985 Síld er sá fiskur sem V-þjóð- verjar hafa veitt mest af og er síld- arkvóti þeirra aukinn lítillega frá fyrra ári. Hafa ber þó í huga að þeir misstu hlutdeild í heildar- kvóta síldar á árinu 1988 og er því einungis verið að bæta upp það tap. Með vaxandi fiskneyslu og minna eigin framboði V-Þjóð- verja, mun þessi markaður verða íslendingum mikilvægari. Einnig sú staðreynd að mun minna af fiski mun berast til Þýskalands frá helsta viðskiptalandinu Danmörk, en Danir hafa fengið óþyrmilega að kenna á minnkandi kvótum Efnahagsþandalagsins. Sem dæmi um minnkandi kvóta Dana má nefna að þeir fá að veiða 102.310 tonn af þorski á árinu 1989 á móti 213.650 tonnum árið áður. Sama gildir um ýsu, ýsukvóti Dan- merkur 1989 er 10.765 tonn, en var árið 1988 20.140 tonn. Vaxandi áhugi er á meðal fisk- sölufyrirtækja að reyna að auka kynningu á sjávarafurðum í Suður- Þýskalandi. Þar hefur fiskneysla einungis verið sem svarar 3-5 kg a mann á ári og með auglýsingaá- taki ætti að vera hægt að auka hana að miklum mun. Þessi mark- aður er sérstaklega eftirsóknar- verður vegna þess að í Suður- Þýskalandi er kaupmáttur einstak- linga mestur, sennilega nálægtþvl sem þest gerist í heiminum í dag- Meðalneysla þýskra á fiski var árið 1988 um 12.6 kg. Neyslan skiptist eftir vinnslu, sem hér segir: 1988 1987_ Niðursoðnar og niður- lagðar afurðir (Síld, makríll, túnfiskur, sardínur 29% 33% Frystur fiskur 22% 20% Ferskfiskur 11% 12% Reykturfiskur 6% 5% Krabbadýr og skelfiskur 19% 18% Saltsíld 4% 4% Annað 9% 8% Vegna áherslu V-Þjóðverja á umhverfisvernd er líklegt að íslendingar eigi mi kla möguleika a þessum markaði. Megináherslu ætti að leggja í auglýsingum, á at- riði eins og haf án mengunar/ fámenni í byggðum norður við íshaf og á ís og kulda. Grænlend- ingar hafa beitt þessum atriðum listilega í auglýsingum á rækju, bæði á markaði í Evrópu og 1 Japan. Aðilar í sjávarútvegi ekki að gera sömu vitleysuna og íslenskir ferðamálafrömuðir sem auglýsa sól og sumar. Það sem fólksmergð stórborganna slæg'st eftir er eitthvað sem er ólík1 umhverfi þeirra og nálægt ímynd' unum þeirra um ósnortið umhverfi og ekkert er hreinlegra og glæSI' legra (á mynd) en t.d. borgarísjaki í bláum sjó. ( Byggt á grein nr Fiskaren.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.