Ægir - 01.02.1992, Page 14
66
ÆGIR
2/92
SJÁVARÚTVEGSRÁÐSTEFNA UM NÝ TÆKIFÆRI í ÚTGERÐ
Guðmuhdur Kristjánsson:
Möguleikar báta til ad veiba
nýjar tegundir
Þann 6. febrúar s.l. var haldinn
fróðleg ráðstefna á Hótel Loft-
leiðum um ný tækifæri í útgerð.
Að ráðstefnunni stóðu Hampiðjan
og L.Í.Ú. Ægir mun birta nokkur
þeirra erinda sem flutt voru á ráð-
stefnunni. Erindin eru: Guð-
mundur Kristjánsson, Möguleikar
báta til að veiða nýjar tegundir;
Páll Gíslason, Veiðimöguleikar í
lögsögu annarra ríkja; Guð-
mundur Gunnarsson, Veiðar á
vannýttum tegundum með botn-
og flotvörpu; Helgi Kristjánsson,
Viðhorf og reynsla togaraút-
gerðar til nýtingar vannýttra
stofna.
Möguleikar báta til að veiða
nýjar fisktegundir hér við land eru
mjög miklir. Þegar sagt er að ekki
sé hægt að byrja á nýrri útgerð í
dag vegna fyrirkomulags núver-
andi fiskveiðistefnu á það ekki við
rök að styðjast. Mönnum verður
tíðrætt um það að mikið fjármagn
þurfi til þess að hefja útgerð. Þetta
er rétt ef talað er um að fara eigi að
veiða kvótabundnar tegundir í
mikilli samkeppni við mörg gömul
og vel rekin fyrirtæki. En það
gleymist alltaf að það er ekki kvóti
á öllum tegundum. Til þess að
veiða nýjar tegundir dugir. ekki að
fá einfalda pólitíska miðstýrða
styrki. Þessi leið hefur oft verið
farin hér á landi þegar fara hefur
átt út í nýsköpun í atvinnulífinu.
Þeir sem fara út í nýsköpun verða
að vera fullir af áhuga og hugsjón
varðandi það sem þeir ætla sér að
koma í verk. Það þarf ekki bara
peninga, það þarf einnig hugvit.
Auðvitað þurfa margir samverk-
andi þættir að vera til staðar svo
að ný útgerð geti blómstrað og
veiðar á nýjum tegundum hafist.
í þessu erindi mun ég segja frá í
stuttu máli hvað bátaflotinn hefur
veitt af nýjum tegundum á síðustu
árum og hvaða tegundir ég tel að
möguleiki sé á að veiða á næstu