Ægir - 01.02.1992, Page 15
2/92
ÆGIR
67
ariJm. Einnig mun ég minnast á
hvaða ytri aðstæður væru æski-
legar til þess að þessar nýjungar
geti átt sér stað.
Hvaða tegundir af svokölluðum
vannýttum tegundum hefur báta-
fiotinn veitt á síðustu árum?
Dragnótaveiðar við Suðurströnd-
lr)a hafa aukist mikið. í dag er
Veiði á langlúru, þykkvalúru,
hfugkjöfu og fleiri kolategundum
nokkuð mikil. Einnig hafa línu-
veiðar á svokölluðum utankvóta-
tegundum aukist nokkuð. Ef við
lítum á 1. mynd sem sýnir veiðar
a löngu og lúðu frá árunum 1955
hl 1991 þá sjáum við að flotinn er
ah veiða mun minna magn en
ahur. Einnig er vert að minnast á
ah rækjuafli báta hefur aukist
^ikið á undanförnum árum.
eiðar á hörpudiski byrjuðu á
arunum kringum 1970 og hafa
Pær veiðar aukist nokkuð jafnt, en
1 hag virðist veiðin vera komin í
(atnvægi. Enn er verið að finna ný
mið en þessi mið eru frekar lítil.
Hverjir eru möguleikar bátaflot-
ans á því að veiða nýjar fiskteg-
undir?
eir sem hafa farið á fiskmarkaði í
° rum löndum hafa séð hve gífur-
egur fjöldi af fisktegundum þar er
oðstólum. Það eru sjálfsagt
a^argar skýringar á þessu en ég tel
aðal skýringin sé sú hve að-
§angur að neytendamarkaðinum
auðveldur. Samgöngur eru
8° ar f þessum löndum svo að
n 1 'ð af fiskinum kemst ferskur til
V enda. En þá er spurning hvað
v' §etum gert? Það er mjög auð-
e t að segja við sjómenn og út-
ve§,5menn 3ð nú skuli þeir fara að
e' a nýjar fisktegundir. En til
h$S veiðarnar skili árangri og
þarf^ ^oma afurðum í verð
cLr að Bera frumrannsóknir og
Klpuleggja ferilið. Til frekari
glöggvunar vil ég skipta þessu ferli
í ákveðnar aðgerðir:
1. Rannsaka hvaða veiðanlegar
fisktegundir eru hér við land.
2. Kanna hvort möguleiki sé á að
veiða þessar tegundir á arð-
þæran hátt.
a. Eigum við réttu skipin til
þessara veiða?
þ. Hvaða veiðitækni þurfum
við að beita við veiðar á
þessum tegundum?
3. Er markaður fyrir þennan fisk?
4. Hvernig á að standa að sölu
fisktegundanna:
a. Lifandi fiskur.
b. Ferskur fiskur.
c. Frystur fiskur.
d. Varan fullunnin fyrir neyt-
andann.
5. Hvernig á að standa að mark-
aðsmálum.
Þetti ferli er reyndar mjög ein-
faldað en sýnir samt að það er ekki
eins einfalt og margir halda að
veiða nýjar tegundir, finna út
hvaða veiðitækni á að nota, og
koma síðan vörunni í verð á
mörkuðum.
En áður en ég fer að tala um
möguleika bátaflotans á veiðum á
nýjum tegundum vil ég skipta
honum í ákveðna flokka.
1. Bátar til veiða á djúpslóð:
a. Sérútbúin togskip.
b. Sérútbúin línuskip.
c. Ný fjölveiðiskip.
d. Gömul fjölveiðiskip.
2. Bátar til veiða á grunnslóð:
a. Hefðbundnir vertíðarbátar.
b. Sérútbúin togskip.
c. Sérútbúin skelveiðiskip.
d. Smábátar.
Ef litið er á aflaverðmæti hvers
bátaflokks fyrir sig kemur í Ijós að
þau skip sem eru orðin sérhæfð
skila mun betri árangri en þau skip
sem eru með mörg veiðarfæri. í
framtíðinni verður þátaflotinn að
sérhæfa sig meira, þá þæði hvað
varðar veiöartæri og markaoi.
Umræðan um að sameina þurfi
fyrirtæki til að ná fram hagræð-
ingu getur átt rétt á sér í vissum til-
fellu. Einn aðalstyrkur bátaflotans
er að eignaraðild að honum er
dreifð og veiðarnar eru stundaðar
á ólíkum skipum á hinum ýmsu
hafsvæðum. Það væri mjög var-
hugaverð stefna að fækka ein-
ingum mikið í bátaflotanum vegna
þess að í öllum iðnríkjum heims er
mikið lagt upp úr litlum einkafyrir-
tækjum. Þau eru hornsteinninn og
aðal drifkrafturinn í efnahagslíf-
inu. Sjávarútvegurinn er okkar
aðaliðnaður.
Bátar sem ætla að veiða á djúp-
slóð hér við ísland verða að vera
nokkuð stórir og þeir þurfa að vera
vel útbúnir, því að veðráttan hér
við land er með versta móti þó
víða væri leitað. Þetta vita flestir
sem stundað hafa sjómennsku og
útgerð hér. En því miður virðist
sem mikill meirihluti þeirra aðila
sem hafa tjáð sig um sjávarút-
vegsmál á síðum dagblaðanna viti
þetta ekki. Ástæðan fyrir því að ég
minnist á þetta hér er að þegar
talað er um að fiskiskipaflotinn sé
allt að 40% of stór, þá veit ég ekki
við hvað er verið að miða. Ef ekki
er einhver umframgeta í flotanum,
þá leitar hann ekki á ný mið. Aðal
drifkrafturinn er tekinn í burtu. Allt
öðru máli gegnir um þá báta sem
ætla sér að stunda veiðar á
grunnslóð, þar er möguleiki á að
vera með eldri og einfaldari báta á
veiðum. Þessi floti mun alltaf vera
með háan meðalaldur en rekstrar-
lega séð getur hann verið mjög
hagkvæmur.
Þær tegundir, sem möguleiki er
á að bátar á djúpslóð veiði meira
af, eru tegundir sem veiðast á línu.
Það er lúða, keila, langa, skötu-
tegundir, háfur og fleiri tegundir.
Erfitt getur reynst að veiða aðeins
eina fisktegund í einu á línu og má
því búast við þorski og öðrum
kvótaþundnum fisktegundum