Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1992, Síða 26

Ægir - 01.02.1992, Síða 26
78 ÆGIR 2/92 áhafna skipanna tókst að koma lagi á hlutina. Einnig komu þar fleiri við sögu. T.d. tók Landhelg- isgæslan með sér varastykki í trollin, þegar hþn fóru í eftirlitsflug um svæðið. Eftir fyrsta úthald var árangurinn lítill, afli og afkoman núll eða minna. Erfiðlega gekk að selja afurðirnar, þar sem Japanir höfðu slæma reynslu af karfanum af þessu veiðisvæði, sem þeir höfðu þá keypt af Rússum og fleiri aust- antjaldsþjóðum. Á endanum var mest af aflanum unnið fyrir Kóreu. Fiskurinn er þá frystur með haus, en ekki hausaður eins og Japanir kjósa. Eina Ijósið í þessu svart- nætti var að á tímabili fékkst góður afli og menn sáu að hægt yrði að veiða talsvert af úthafskarfa ef byrjunarerfiðleikar yrðu yfirstign- ir. Fullir bjartsýni réðust menn því í að betrumbæta trollin og undir- búa sig fyrir seinni veiðiferðina þetta ár. Þá var Ijóst að ekki fengist nokkur styrkur til veiðanna, mörgum þótti nóg um hvað mulið hafði verið undir okkur fyrr um vorið. Veiðarnar gengu þokkalega á seinna tímabilinu og lönduðu skipin um 200 tonnum af heilfryst- um karfa úr túrnum. Hluti af þeim afla var unninn á Japan og afgang- urinn á Kóreu. Veiðarnar 1990 Um áramótin 1989/90 var ákveðið að halda enn af stað á úthafskarfaveiðar næsta vor, þótt ekki hafi afraksturinn verið merki- legur árið á undan, né eftirtekjan nokkur þegar allt var tínt til. Þó þótti rétt að gera aðra tilraun því töluverð reynsla hafi fengist og sýnt þótti að hugsanlega gæti þetta gengið ef veiðin myndi glæðast og verð á afurðunum hækka. Á þessum tíma var verð á skornum, heilfrystum karfa heldur á uppleið í Japan, eins og á flestum öðrum tegundum á öðrum mörkuðum. Líkt og árið áður var farið fram á stuðning frá sjávarútvegsráðuneyt- inu í formi grálúðukvóta. LÍÚ tók að sér að sækja um þessa aðstoð og var veittur styrkur til allra sem áhuga höfðu á. Notuð var sama viðmiðun og árið á undan. Jafn- framt var sagt að þetta yrði í síð- asta skipti sem slíkar veiðar yrðu styrktar, hér eftir yrðu þær að bera sig sjálfar. Sett var upp nýtt troll fyrir sumarið því fyrstu trollin höfðu orðið fyrir svo miklum áföllum árið áður að þeim var ekki treyst í veiðarnar. Þar sem svo langt er á miðin, leggjum við talsvert upp úr því að veiðarfærin séu sterk og vel gerð, svo síður komi til að skipin þurfi að keyra í land vegna þeirra. Illmögulegt er að gera við trollin um borð vegna stærðarinnar. Úthaldið var svipað og árið á undan. Gert var ráð fyrir tveimur veiðiferðum. Þeirri fyrri frá 20. apríl til u.þ.b. 15. maí. Síðan var farið á grálúðu út af Víkurál og aftur á úthafskarfa um 12. júní til fyrstu viku í júlí. Segja má að veiðarnar hafi gengið nokkuð vel þetta ár. Aflinn var um 800 tonn hjá hverju skipi, og var hann allur unninn fyrir Jap- ansmarkað. Vöntun var þá á karfa í Japan og verð því viðunandi, en fór hækkandi þegar leið á sumar- ið. Þegar staðan var metin um haustið, töldu menn að þetta hefði staðið undir sér og rétt væri að stefna á þetta aftur næsta vor, í apríl 1991. Þá var einnig ákveðið að reyna að betrumbæta og stækka trollin og reyna þannig að ná meiri afköstum. Hafði Hampiðjan frumkvæðið að því að fara ásamt skipstjórn- armönnum og útgerðaraðilum úr Hafnarfirði, til að skoða líkan af nokkrum trollgerðum í veiðar- færatilraunatankinum í Hirtshals í Danmörku. En þar hafi einnig verið gerð tilraun með eldri gerðir þessara trolla. Trollið reyndist mjög vel og nýttist vel sú reynsla sem skip- stjórnarmennirnir höfðu öðlast. Aflinn jókst verulega og var sam- tals um 1500 tonn há útgerðinni af fullunninni vöru fyrir Japansmark- að, en því miður var talsvert fram- boð af smákarfa frá Noregi á sama tíma, svo verð féll töluvert frá árinu áður, eða sem nam 23% miðað við gengi japanska yensins. Meðalverð á fullunninni afurð 1991 var um 92 kr. fob. Á síðasta ári voru að jafnaði 4 til 6 skip frá íslandi á úthafskarfa- veiðum. Norðmenn hafa í aukn- um mæli sótt á þessar slóðir, en Austur-Evrópuþjóðirnar hafa aftur á móti minnkað sinn flota við þessar veiðar. Færeyingar höfðu reynt sig við þetta áður, en með litlum árangri. Þá voru þeir með kolmunnavörpur, sem ekki virðast henta, þótt opnun í þeim verði að teljast nokkuð góð. Ljóst er að úthafskarfaveiðar eru orðnar að nýrri auðlind í fisk- veiðum íslendinga. Veiðar sem við þekktum ekki fyrir aðeins 3 árum, en voru þó stundaðar af stórum úthafsveiðiflotum í um 10 ár hér rétt við bæjardyrnar hjá okkur. Þær eru eitt besta dæmið um hvaða möguleika við höfum til að auka afla okkar á sama tíma og veiðar á hefðbundnum tegundum dragast saman. Á síðasta ári var andvirði afla einstakra skipa sem voru á úthafskarfa allt að 65 millj- ónir fob. Það er mitt mat að úthafskarfa- veiðar í framtíðinni verði aðallega stundaðar af skipum sem vinna afla sinn um borð. Helsta ástæðan er sú að langt er á miðin, skip hafa verið á veiðum allt að 480 sjó- mílur frá Reykjanesi, þó mest hafi verið veitt frá 200 sjómílna land- helgi íslands og út í 300 sjómílur. Önnur ástæða er sú að úthafskarf- inn er verðlítill vegna þess hve smár hann er. Hann er jafnan smærri en sá

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.