Ægir - 01.02.1992, Síða 32
84
ÆGIR
2/92
fiski í fyrra, sem er um 3% magn-
aukning milli ára. Verðmætaaukn-
ingin varð mun meiri eða 12%, en
salan nam alls 3,7 milljörðum
króna. Samdráttur varð aftur á
móti bæði í magni og söluverð-
mætum hjá VÍK, dótturfyrirtæki
SH í Hamborg. VÍK seldi 14 þús-
und tonn á sl. ári fyrir tæpa 3
milljarða króna, sem er 4% verð-
mætaminnkun, en samdráttur í
tonnum reyndist 15% milli ára.
Sama magnhlutfall til
Bandaríkjanna
Bandaríski markaðurinn hélt
sama magnhlutfalli eða 22%
miðað við heildarútflutning SH
milli áranna 1990 og 1991. í fyrra
voru flutt út rúmlega 18 þúsund
tonn af frystum fiskafurðum til
Coldwater Seafood Corp. í Banda-
ríkjunum, en 21 þúsund tonn árið
áður. Munurinn í magni liggur f
samdrætti á þorskafurðum, en
segja má að samdrátturinn hafi
orðið mjög svipaður í sölu á þorski
til Evrópulanda og Bandaríkjanna
1991. Verðmæti útflutningsins á
bandarískan markað á sl. ári nam
tæplega 5,5 milljörðum króna,
sem er 8% aukning miðað við
1990.
Verömætaaukning í Asíu
Mesta verðmætaaukningin varð
í sölu á sjávarafurðum til Asíu-
landa en Sölumiðstöðin rekur
sölufyrirtækið IFPC í Tókíó sem
sinnir sölumálum í Asíu. Japan er
mikilvægasti markaðurinn í Austur-
löndum. I fyrra seldust um 20 þús-
und tonn í Asíu fyrir tæplega 2,8
milljarða króna, sem er 30% verð-
mætaaukning frá 1990. Hér
munar mestu um breytingu á sam-
setningu fisktegunda. í fyrra jókst
karfa- og grálúðusala til Asíu en
samdráttur varð í sölu á síld og
loðnu, sem eru verðminni afurðir
en þær fyrrgreindu.
Lax og hrossakjöt
Á sl. ári voru flutt út á vegum
SH um 900 tonn af ferskum laxi en
árið áður nam þessi útflutningur
um 1.200 tonnum.
Á nýliðnu ári hóf Sölumiðstöðin
útflutning á hrossakjöti til Japans.
Um er að ræða „fitusprengt" kjöt,
sem er að mestu úrbeinað fyrir
flutning m.a. til að draga úr flutn-
ingskostnaði. Alls voru flutt út 55
tonn að andvirði 30 milljónir
króna og hefur kaupendum líkað
kjötið vel.
Árlegur verkstjórafundur SH
Um 130 manns sátu árlegan
verkstjórafund Sölumiðstöðvar-
innará Hótel Loftleiðum 9. og 10.
janúar s.l. Þar stýrðu m.a. fulltrúar
SH og starfsmenn dótturfyrirtækja
og söluskrifstofa SH á fimm mark-
aðssvæðum í þremur heimsálfum
frá framleiðslu-, sölu- og markaðs-
málum aðildarhúsa Sölumiðstöðv-
arinnar. Ennfremur var fjallað um
framtíð sjávarútvegs og fiskvinnslu
á íslandi.
Vestur-þýsku björgunar-
bátarnir eru í samræmi viö
ströngustu kröfur íslendinga
». L I nmi y Hverfisgötu 6, Reykjavík
iKjjan u. biAloAan F sími: 20000