Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1992, Page 36

Ægir - 01.02.1992, Page 36
88 ÆGIR 2/92 L(t) = LolO-kt: L = Magn lífræns efnis við tímann t, bein tengsl eru milli súrefnisnotkunar og lífræns efnis. Lo = Upphaflegt magn lífræns efnis. T = Hitastig. k = Fasti sem er breytilegur eftir því um hvers konar lífræna mengun er að ræða, hann er einnig háður hitastigi. Fyrir bæjar- skólp við T = 20°C er k = 0,17. En fyrir önnur hitastig má nota eftirfarandi formúlu til að um- reikna k fastann, kT/k20 = 1,047(T' 20) COD „chemical oxygen demand": COD er mælikvarði á heildar- magn súrefnis sem þarf til að oxa lífræna efnið, þ.e. ekki með líf- verum eins og BOD mælikvarðinn mælir. Samanburður á COD og BOD tölum fyrir lífrænan úrgang getur því gefið hugmynd um hvernig niðurbrot muni ganga í náttúrunni. Mælieining er að jafn- aði mg/lítri. TOC „total organic carbon": TOC er mælikvarði á heildarmagn lífræns efnis gefið upp í mg/lítra. Þetta er mælt með því að brenna úrgangnum og mæla myndun C02. Mælieining er að jafnaði mg/lítri. TT „Total torrstoff": Ein aðferðin við að ákvarða heildarmagn þurr- efnis ,TT, er skilgreind sem það efni sem verður eftir þegar vatnið í frárennslissýninu er soðið frá og efnið sem eftir verður þurrkað við 103-105°C f 15 mínútur. Þurr- efnið inniheldur því bæði lífræn efni (fita, prótein, kolvetni) ogólíf- rænt sölt. Mælieining er að jafnaði mg/lítri eða g/lítri. Aska Askan er mælikvarði á magn ólífræns úrgangs og kemur nafnið af því að þetta er það sem eftir verður þegar þurrefnið er brennt við 550-600°C. Þá brenna öll líf- rænu efnin og eftir verða þau ólíf- rænu þ.e. aska. Mismunur á heildarmagni þurrefnis og ösku er því magn lífrænna efna. Mæliein- ing er að jafnaði mg/lítri. Svifefni „Suspended solids" Svifefni eru eins konar mæli- kvarði á grugg og tægjur í frá- rennsli og er skilgreint sem það magn þurrefnis sem síast í burtu þegar frárennsli er síðað í gegnum fínan glertrefjafiIter. Þau efni sem ekki síast í burtu eru þá talin vera uppleyst í vatninu . Fita/olíur/lýsi Fiskar eru að meginuppistöðu prótein, fita og vatn. Fituinnihald fiska er mjög mismunandi en fita sem fer út með frárennsfi frá fisk- vinnsluhúsum er ein versta meng- unin sem við er að glíma í frá- rennsli frá fiskiðnaði. Fitumengun sem þessi er oft nefnd í daglegu tali grútur. Heildar köfnunarefni Miðað er við að fiskprótein inni- haldi u.þ.b. 16% af köfnunarefni. Nota má þetta sem mælikvarða á heildarmagn próteins í frárennsli frá fiskvinnslu. þ.e. magn próteins er magn N/0,16. Mælieining er að jafnaði mg/lítri. Lífræn mengun í skólpi Algengt er að umreikna lífræna mengun frá framleiðsluferlum yfir í skólpmengun út frá ákveðnum fólksfjölda. Sem dæmi þá er kannski reiknað út að frárennsli matvælaverksmiðju samsvari skólpmengun frá 1000 manna þorpi. Til að gera skólptölur sam- bærilegar við lífræna mengun frá framleiðslufyrirtæki þá virðist venjulega vera miðað við BOD styrk mengunarinnar. í Ijósi þessa er mikilvægt að vita hver samsetn- ingin er að jafnaði á skólpi. Eftirfarandi tölur eru banda- rískar og er notast við tölur fyrir „small residential community"(2): Efnasamsetning frárennslis frá íbúðarbyggð Magn 400 lítri/dag BOD, 190 mg/lítri COD 320 mg/lítri TOC 135 mg/lítri ss 225 mg/líteri Uppleyst fast efni 450 mg/lítri Heildar köfnunarefni 40 mg/lítri Heildar fosfór ... .... 10 mg/lítri pH 7 mg/lítri Kopar 0,140 mg/lítri Kadmíum 0,003 mg/lítri Króm 0,040 mg/lítri Nikkel 0,010 mg/lítri Blý 0,050 mg/lítri Sink 0,190 mg/lítri Hér á landi er unnið að sam- setningu frárennslis frá íbúðar- byggð. Niðurstöður liggja ekki fyrir og því er þessi tafla gefin upp sem dæmi um samsetningu slíks frárennslis. Lífrænt niðurbrot Þegar lífrænt efni brotnar niður er í grundvallaratriðum um tvo möguleika að ræða. Loftháð niðurbrot (súrefni notað) og loft- firrt niðurbrot (án súrefnis). í báðum tilfellum eru það þó örveirur sem sjá um niður- brotið. Sem þumalputtareglu má miðað við að loftháð niðurbrot gangi mun hraðar fyrir sig og nán- ast engin lykt myndist við niður- brotið en loftfirrt niðurbrot gerist hægar og talsverður óþefur mynd- ist. Á móti kemur, að þar sem loft- háð niðurbrot þarfnast súrefnis þá vill súrefnið í vatninu þar sem niðurbrotið á sér stað klárast, eða a.m.k. minnka það mikið að lífið fyrir aðrar sjávarlífverur verður óbærilegt. Þetta á auðvitað aðal- lega við um næsta nágrenni frá- rennslisstúta. Ástæðan fyrir þessum lyktar- mun er fólgin í því að um mismun- andi myndefni er að ræða annars vegar lyktarlaus myndefni og hins

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.