Ægir - 01.04.1992, Side 12
172
ÆGIR
4/92
Örn Pálsson:
Smábátaútgerðin
áríð 1991
Nú, tveimur árum eftir að lög
38/1990 um stjórnun fiskveiða
voru samþykkt, er Ijóst orðið að
framkvæmd þeirra hefur orðið til
þess að þróun smábátaútgerðar á
íslandi er stefnt í hættu. Afli smá-
báta hefur dregist stórlega saman,
lang mest miðað við aðra útgerð-
arflokka.
Arið 1991 var erfitt ár hjá mörg-
um trillukarlinum. Fiskgegnd á
grunnslóð var ekki sem skildi á
Austur- og Norðurlandi en skilaði
sér þokkalega á önnur landsvæði,
einkum var afli jafn á Ströndum
og gott sumarfiskerí á Vestfjörð-
um og í Breiðafirði.
Heildarafli varð á síðasta ári yfir
50 þúsund tonn, sem útleggur sig
á aflaverðmæti til útflutnings upp
á 7,2 milljarða og eru þá 9.900
tunnur af söltuðum grásleppu-
hrognum meðtalin.
Eins og taflan hér að neðan ber
með sér hefur afli smábáta aukist
jafnt og þétt með fjölgun báta. A
sl. ári skullu síðan yfir smábáta-
eigendur ný lög um stjórn fisk-
veiða. Mikil ringulreið greip um
sig hjá eigendum báta milli 6 og
10 tonn og kusu fjölmargir, eða
um þriðjungur þeirra, að láta frá
sér alla aflahlutdeild. Einkum réði
það þeirri ákvörðun að aflamark-
ið var svo lítið að ekki var hægt
að reka útgerðina og freistingin
fyrir blaktandi seðlum stórútgerð-
arinnar bar þá ofurliði. Við þetta
hefur bátum fækkað um fimmt-
ung eins og sjá má, eða um 330
samtals og er þar nánast eingöngu
um aflamarksbáta að ræða sem
hefur fækkað um 40%.
Ekki er því að neita að margir
þessara aðila sem létu frá sér afla-
hlutdeildina fengu sér önglabát
og róa nú í banndagakerfi á nýj-
um bátum, sem komið hafa í stað
eldri báta af sömu stærð. Sú þró-
un hefur leitt af sér að sóknargeta
banndagabátanna hefur aukist
mikið. Allir róa nú hver í kapp við
annan í orðsins fyllstu merkingu
þar sem núgildandi lög kveða svo
Smábátar og afli þeirra 1991
Heildarafli Þorskafli Fjöldi báta Afli á bát
1985 28.084 23.716 1.145 25
1986 36.880 30.757 1.197 31
1987 43.582 36.404 1.346 32
1988 47.117 38.150 1.517 31
1989 58.382 45.833 1.828 32
1990 63.797 47.724 1.784 36
1991 50.625 33.442 1.450 35
(Magn er í tonnum, tölur fyrir 1991 eru áætlaðar.)
á um að önglaleyfið verði
afnumið 1. september 1994 og
2% af heildarþorskaflanum (vær'
5.000 tonn - óslægt - miðað við
úthlutun á þessu fiskveiðiári) skip1
á milli þeirra f hlutfalli við afla'
brögð á almanaksárunum
'92 og '93. Miðað við nýjustu töl'
ur um veiði önglabáta og framtíð-
arhorfur í þorskveiði verður kvotj
þeirra aðeins um 30% af veiði
þeirra á þessu ári. Því er þaó ljóst
að ef ekki tekst að breyta lögum
um og ákvæði núverandi la8a
gengur eftir þýðir það aðeins e'11
fyrir smábátaútgerð í landinu, Þaö
er: hún mun heyra sögunni tiI-
Er undirritaður skýrði þetta ut
fyrir félaga sínum á Nýfundna'
landi nú fyrir skömmu var rekio
upp ramakvein og spurt:
„Hvers vegna, þið sem efU
fremstir í heiminum í þessari ut'
gerð, útgerð sem er hagkvæmuí,t
allra útgerða og útgerð sem 3
hvað mesta framtíð fyrir sér í va^'
andi umræðu um umhverfismáb
]á! það er von að spurt sé °g
það er einnig skiljanlegt að h*1
verði um svör við slíkum athug3'
semdum.
Augljóst er að lögin kalla á óf
ugþróun sem tafarlaust verður a
korna í veg fyrir að gangi eftir- A
kvæði laganna um afnám sma
bátaútgerðar er slys sem verður
að koma í veg fyrir. Augljóst er
hver afleiðingin verður samanóer
kvótasetning á alla smábáta
stærðarbilinu 6-10 brl. Smábáta