Ægir - 01.04.1992, Síða 14
174
ÆGIR
4/92
en samsvarandi tala á línu er
1 7% af 4ra ára fiski,
3. Fimmtungur þess afla er veidd-
ur er í troll er smáþorskur en
samsvarandi tala á línu er 6%.
Hrognkelsa veiðar
Gegnum árin hefur þorskur ver-
ið meira en 80% af heildarafla
smábátaeigandans og þar með
meginuppistaðan í lífsafkomu
hans. Nokkur hópur er þó undan-
skilinn og eru það veiðimenn sem
hafa lagt stund á einu sérveiðarn-
ar sem smábátaeigendur hafa að-
gang að - hrognkelsanytjar, grá-
sleppuveiðar. Til þessa hafa nær
eingöngu hrognin úr grásleppunni
verið hirt. Rauðmagaveiðar hafa
þó alltaf fylgt með enda þykir
rauðmaginn herramannsmatur og
þá einkum lifrin úr honum.
Grásleppuveiðar hafa gengið í
bylgjum og hafa oft komið ár þar
sem veiði hefur brugðist gjörsam-
lega. Grásleppan gengur upp á
landgrunnið til hrygningar síðla
veturs, fyrst kemur hún að norð-
austurhorninu og byrja veiðar þar
20. mars. Nú hin síðari ár hefur
þótt ástæða til aó hafa nokkra
stjórn á veiðunum, ekki er það þó
vegna þess að fiskifræóingar hafi
lagt þaó til vegna lélegs ástands á
stofninum, heldur hafa þar eink-
um ráðið ferðinni markaðsað-
stæður.
Grásleppuveiðarnar hafa
þannig verið bundnar við báta
sem eru minni en 12 brl. A síð-
astliðinni vertíð (1991) varð
breyting á. Til þess að fá leyfi
varð væntanlegur veiðimaður að
hafa stundað grásleppuveiðar að
minnsta kosti eitt tímabil áranna
'87-'90. Nú eru því öll grá-
sleppuleyfi bundin við bát sem er
eða var í eigu rétthafa. Alls hafa
530 bátar heimild til að stunda
grásleppuveiðar.
í langan tíma hefur miðunum
verið skipt í 6 veiðisvæði og er
skiptingin sem hér segir: Frá Hvit-
ingum vestur með suðurströnd-
inni að Öndverðarnesi, þaóan að
Bjargtöngum, þriðja svæðió nær
síðan að Horni, þá eru Strandir að
Skagatá eitt svæði og fimmta
svæðið nær frá Skagatá að Fonti a
Langanesi. Hringurinn lokast síð-
an með svæðinu á milli Fonts og
Hvítinga. Veiðitímabilið hefnr
verið 3 mánuðir á hverju veiði'
svæði.
Grásleppuveiðar hafa þótt arð'
vænlegur veiðiskapur, þó þar hafj
skipst á skin og skúrir eins og a
öðrum veiðum. Má þar nefna að
grásleppuveiðar eru mjög háðar
veðurfari. Áföll hafa dunið yfic °8
má tiltaka vertíðir þar sem öll nel
veiðimanna hafa eyðilagst í byfJ'
un vertíðar og þar með gert veiði'
menn tekjulausa á því árinu. Gra-
sleppuveiðimenn eru þó eng,n
undantekning frá öðrum veiði'
mönnum, hin erfiða lífsbarátta
hefur kennt þeim að bjarga sér.
Hér á árum áður svaraði verð-
gildi fulluppsaltaðrar tunnu a*
grásleppuhrognum - 105 kg 3
hrognum þarf til að fylla eina
tunnu - til tveggja tonna a*
Aflatölur smábáta 1991
Strandir 1.040 Vogar
Stykkishólmur 820 Kópasker
Siglufj. Haganesvík 640 Neskaupsstaður
Vopnafjörður 602 Bíldudalur
Akranes 600 Leirhöfn
Raufarhöfn 591 Bolungarvík
Barðaströnd 516 Hafnarfjörður
Reykhólar 436 Sandgerði
Reykjavík 379 Grímsey
Húsavík 357 Tjörnes
Flatey 350 Álftanes
Patreksfj. / Tálknafj. 335 Suðureyri
Ólafsfjörður 320 Hofsós
Grundarfjörður 300 Flateyri
Bakkafjörður 292 Dalvík
Þórshöfn 290 Sléttahlíð
Sauðárkrókur/ Skagi 285 Þingeyri
Rif / Eyjar 246 ísafjörður
Grenivík 210 Samtals