Ægir - 01.04.1992, Side 32
192
ÆGIR
4/92
vegna hins lága sjávarhita hér við
land. Jafnframt að hrogna/svilja-
innihald sé með því hæsta sem
þekkist, litur kynkirtlanna hinn
eini rétti og bragð ásamt fersk-
leika hreint afbragð. Með þessar
staðreyndir að leiðarljósi var
stefnt að því að stýra magni til út-
flutnings þannig að halda mætti
a.m.k. sarna verði og fengist fyrir
frsk ígulker, en þau eru seld á
Frakklandsmarkaði fyrir 35-55
FFR eftir árstíðum. Með hliðsjón
af viðbrögðum kaupenda fyrstu
vikur útflutnings þar sem upphaf-
leg pöntun upp á 300-400 kg var
tvöfölduð, þótti raunhæft að á-
ætla útflutninginn til áramóta allt
að 2-4 tonn. Þó mátti magnið
aldrei vera svo mikið að verðfall
yrði, meðan varan væri að hasla
sér völl. Hér var mikils um vert
með langtímasjónarmið í huga að
stilla útflutningi í það hóf sem
markaðurinn krefst af nýju vöru-
merki eigi hátt verð að haldast.
Samhliða rannsóknum og mark-
aðssetningu í Frakklandi var unn-
ið aó markaðssetningu á lifandi
ígulkerum fyrir Japansmarkað og
að vinnslu ígulkerakynkirtla fyrir
sama markað undir japanskri sér-
fræðiaðstoð. Þegar rætt er urn
vinnslu hrogna er fyrst og fremst
átt við verkun þeirra til útflutnings
ferskra, saltaðra og frystra. Japans-
markaður er rnjög stór fyrir þessar
vörur og verð fyrir góðar vörur
mjög hátt eins og áður er nefnt.
Sýnishorn voru send utan bæði
lifandi og sem unnir kynkirtlar og
voru niðurstöður góðar.
Fulltrúar Japan Air Lines Trad-
ing Co (dótturfyrirtæki samnefnds
flugfélags) hafa komið til íslands
til viðræðna um viðskipti og hafa
jafnframt reifað hugmyndir um
samvinnu varðandi vinnslu ígul-
kera hér á landi. Einnig hafa full-
trúar fyrirtækis í New York sem
nefnist Eastern Sea Product Inc.
verið í nánu sambandi við Stíg-
anda, en það fyrirtæki hefur
markaði bæði í Bandaríkjunum
og Japan. Þessir aðilar hafa
margoft komið til íslands þeirra
erinda að kynna sér starf Stíganda
og kennt þeim ýmislegt er varðar
vinnslu ígulkeraafurða.
Mikið af tilraunasendingum
hefur verið flutt frá íslandi bæði
til Bandaríkjanna og Japan í gegn-
um þetta fyrirtæki og heíur
heppnast það vel að Eastern Sea
Producs Inc. hefur talið íslensku
ígulkerin með þeim bestu í heim-
inum í dag.
Vegna þess að hinir kröfuhörðu
kaupendur sækjast mest eftir ung-
um ígulkerum og ekki mikið eldri
en 2-5 ára gömlum, þá er það
ýmsum annmörkum háð að afla
mikils magns af þeim hér við land
án þess að grisjun komi til. ígul-
kerastofnarnir hér við land hafa
ekki verió nýttir til þessa þannig
að aldursamsetning þeirra er frek-
ar óhagstæð, en þetta horfir von-
andi til betri vegar í framtíðinni.
Þau fyrirtæki sem Stígandamenn
hafa verið í sambandi við eru
sammála um að unnt sé að koma
upp mjög góðuni ígulkeraiðnaði
hér á landi, miðað við ákveðnar
forsendur.
Að öðru leyti vitna ég til skýrslu
frá Stíganda og Neysluvörum H/F,
sem þeir skiluðu til Rannsókna-
ráðs ríkisins á síðastliðnu ári og
fjallar um rannsóknir fyrirtækj-
anna á veiðum og markaðssetn-
ingu ígulkera í tengslum við þetta
verkefni.
Lokaorð
ígulkeraveiðar og vinnsla á ís-
landi geta orðið arðsamur at-
vinnuvegur að uppfylltum eftirfar-
andi skilyrðum.
1. Tryggja þarf aðgang að góðum
veiðisvæðum, þar sem hægt er
að athafna sig í nánast hvers-
konar veðrum þannig að af-
hending aíurða verði örugg.
2. Tryggja þarf að veiðisvæðin og
afurðirnar séu ómenguð.
3. Kanna þart' ódýrar og hentugar
veiðiaðferðir sem jafnframt
tryggi gæði ígulkeranna með
tilliti til vinnslu. Tímabundið
eldi kæmi einnig til greina.
4. Rannsóknir þurfa að fara fram
á þeim svæðum sem nytjuð
verða og þannig tryggt að gæði
ígulkeranna séu könnuð hverju
sinni með tilliti til kynþroska
og ástands.
5. Gera þarf átak í að grisja á-
kveðin svæði og reyna þannig
að yngja upp ígulkerastofninn
staðbundið, þannig að afurðir
hans verði verðmeiri.
6. Koma þarf upp gæðaskoðun
áður en ígulkerin verða send
erlendis á markað og konia
þannig í veg t’yrir að gölluð og
léleg vara fari úr landi og valdi
ómældum skaða.
7. Ef ígulkerin verða unnin hér a
landi þart' að huga að meiri
vélvæðingu í vinnslu þeirra til
að bæta samkeppnisaðstöðu a
erlendum mörkuðum.
8. íslenskir útflytjendur ígulkera
þurfa að kappkosta að hata
samráð hver við annan um það
magn er fer á markaði erlendis
hverju sinni og halda þannig
uppi ákveðnu verði. Jafnírarnt
að þeir reyni að halda uppi a-
kveðinni ímynd um íslenskan
hreinleika og gæðavöru.
Þakkir
Þessum aðilum vil ég þakka
sérstaklega: Rannsóknaráði ríkis-
ins fyrir fjárstyrk þann sem getð'
okkur kleift að vinna að þessari
athugun. Þeim Birgi Kristinssyn'
hjá Stíganda og Guðmundi Em*
arssyni hjá Neysluvörum H/F °8
Hannesi Magnússyni hjá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins fyri.r
samstarfið og þeirra framlag. Stet-
áni S. Kristmannsyni fyrir veitta
aðstoð við hitamælingar og gðð"
fúsleg afnot at' rnælingagögnum-
Ellert Vigfússyni og félögum 1
Stykkishólmi og Antoni Galan fyr"