Ægir - 01.04.1992, Page 36
196
ÆGIR
4/92
kanna afla íslenskra togara á
sóknareiningu á þessuni árum, en
afli Breta á hverja'einingu, þ.e.
milljón tonntíma fór stöðugt
minnkandi. Arið 1946 veiddu
breskir togarar hér við land 7.540
tonn á hverja milljón tonntíma,
4.084 árið 1952, 3.948 árið
1954, 2.81 1 árið 1960 og árið
1971, síðasta árið fyrir útfærsluna
í 50 sjómílur, var afli þeirra á
hverja sóknareiningu aðeins
2.041 tonn, sem var svipað og á
síðari hluta 4. áratugarins. Svip-
aða sögu er að segja af veiðum
Þjóðverja hér við land.
Þetta bendir eindregið til þess
að ástandi fiskistofnanna hafi
hrakað, til þess að ná í hvert tonn
af fiski þurfti að sækja meira, við
það jókst kostnaðurinn, útgerðin
varð dýrari. Engin ástæða er til að
ætla að reynsla íslendinga í þessu
efni hafi verið önnur en keppi-
nautanna og þarna hygg ég að sé
að finna meginskýringu þess, hve
illa útgerðin gekk. Aðrir þættir,
svo sem markaðsverð, stjórn-
valdsaðgerðir o.s.frv. juku enn á
erfiðleikana.
Loks er að geta örfárra minni-
háttar atriða, sem betur hefðu
mátt fara og er þar fyrst að taka
aó á bls. 31-35 þar sem fjallað er
um tilraunir til togarakaupa er-
lendis á árunum eftir stríð segir að
togarar smíðaðir í Bandaríkjunum
hafi ekki verið taldir henta við ís-
lenskar aðstæður. Það mun mála
sannast að aldrei hafi komið til
greina í alvöru að kaupa togara
vestan hafs, en af hverju þóttu
bandarísku skipin svo óhentug?
Var það vegna byggingarlags,
stærðar, búnaðar eða hvað?
Þá segir frá því á bls. 36 að ís-
lenskum sendimönnum í Bret-
landi hafi verið skýrt frá því að á
árinu 1945 hafi breskir togaraeig-
endur staðið í samningaviðræð-
um við bresku flotastjórnina um
kaup á gömlum togurum, en hún
hafi keypt 120 togara til hernað-
arþarfa í stríðsbyrjun og af þeim
hafi um 80 verið á floti árið 1945.
Hér er eitthvað málum blandið og
mun þó frekar við heimildirnar að
sakast en höfundinn. Staðreyndin
er sú að breska flotastjórnin
keypti engin skip af togaraeigend-
um eða öðrum í stríðsbyrjun. Hún
tók þá togara, sem hún taldi sig
þurfa, eignar- og leigunámi, og
þeir voru miklu fleiri en 120.
Þannig voru 248 togarar, stórir og
smáir, gerðir út frá Hull árið 1938
og voru þeir nánast allir teknir.
Þeim, sem enn voru ofansjávar í
stríðslok, var skilað og þá fengu
togaraeigendur einnig tækifæri til
að kaupa togara, sem smíðaðir
höfðu verið til hernaðarþarfa á ó-
friðarárunum. Þeir gætu vel hafa
verið 120 og 80 á floti 1945.
Á bls. 68 segir að togarafélagið
Valur á ísafirði hafi „að öllum lík"
indum" sótt um nýsköpunartog-
ara, en hætt við. Valur var stofn-
aður um útgerð togarans Hávarð-
ar ísfriðings skömmu fyrir stríð og
gerði skipið út undir nafninu
Skutull fram í stríðsbyrjun. Þá var
skip selt Þórði Ólafssyni og Valur
hætti starfsemi á ísafirði. Ekki er
fullljóst, hvort Þórður keypti nafn
félagsins um leið og skipið, en
víst er að hann rak það aldrei a
ísafirði. í Reykjavík var hann hins
vegar einn af forvígsmönnuni tog-
arafélagsins Asks, sem einnnitt
fékk nýsköpunartogara. Má vel
vera að hann hafi sótt um skip 1
upphafi í nafni Vals, en ekki á ísa-
fi rði.
Þessi atriði skipta litlu máli og
þegar á heildina er litið tel eg
mikinn feng að bók Þorleifs Ósk-
arssonar. Ég er að sönnu ekki
sammála öllum niðurstöðum hans
en hér er á ferðinni gott yfirlitsrit
yfir mikilsverðan þátt í íslenskri
atvinnusögu eftristríðsáranna. Ser-
stakur fengur er að hinum fjöl"
mörgu töflum, línuritum og skýr-
ingarmyndum og allur frágang111
bókarinnar er með ágætum.
Jón P. Pór’
ísfisksölur í mars 1992
Sölu- dagur Sölu- staður Magn kg Erlend mynt íslenskar krónur Meðal- verð ÞorskW
Þýskaland: 1. Vigri RE 71 2. og 31. Bremerhaven 428.541 DM 1.268.321.81 45.597.341.60 106.40 10-557 2.739
2. Haukur GK 25 5. Bremerhaven 132.011 DM 406.564.03 14.540.645.70 110.15
3. Viðey RE 6 9. Bremerhaven 248.140 DM 638.435.30 22.865.715.70 92.15 14.21^ 5.353 16.06*’ 33 1.20& 95O 8.013 24-2*3
4. Drangey SK 1 11. Bremerhaven 109.629 DM 324.785.03 11.617.826.30 105.97
5. Breki VE 61 13. Bremerhaven 239.968 DM 610.678.29 21.875.965.00 91.16
6. Ögri RE 72 17. Bremerhaven 284.123 DM 731.405.63 26.277.727.80 92.49
7. Jón Baldvinsson RE 208 19. Bremerhaven 201.611 DM 486.568.70 17.463.687.80 86.62
8. Björgúlfur EA 312 20. Bremerhaven 126.445 DM 368.829.50 13.205.208.80 104.43
9. Engey RE 1 23. Bremerhaven 273.518 DM 698.554.60 25.005.892.60 91.42
10. Bessi ÍS 410 27. Bremerhaven 300.033 DM 981.717.42 35.217.476.90 117.38
Samtals í mars 1992 2.344.019 6.515.860.31 233.667.488.20 99.69 83.35'