Ægir - 01.04.1992, Qupperneq 58
218
ÆGIR
4/92
Dráttarbrautin á Akranesi.
að tvöfaldast eftir að nýja flæði-
línan var sett upp. Nú er byrjað
að smíða flæðilínu í nýja togar-
ann á Akranesi, Höfrung. Skag-
strendingur hf. hefði og ákveðið
að setja snyrtilínu frá Þorgeir og
Ellert með tölvuvigtarkerfi frá
Marel í nýja togarann sem Skag-
strendingar eru með í smíðum.
Framleiðsluskiptingin í fyrirtæk-
inu er nú þannig að vinna við
flæðilínurnar er u.þ.b. helmingur
af starfseminni, en hinn helming-
urinn felst í allskyns viðgerða- og
viðhaldsþjónustu. Þeir Haraldur
og Benedikt sögðu innanlands-
markaðinn það stóran að gera
mætti ráð fyrir að þessi þjónusta
yrði jafnmikil að umsvifum næstu
ár. Nú er hinsvegar farið að huga
að vaxandi sókn á erlendan mark-
að. A sjávarafurðasýningunni í
Boston, sem haldin var nýverið,
kom í Ijós mikill áhugi erlendra
aðila á nýju flæðilínunni. í febrú-
ar gerði Þorgeir og Ellert samning
við Marel hf. um umboðssölu,
þannig að Marel sér um sölu á
framleiðslu fyrirtækisins erlendis.
Nú eru væntanlegir aðilar frá
Kanada sem ætla að skoða nýju
flæðilínuna.
Haraldur sagði flæðilínuna að
hluta vera svar vinnslunnar við
frystitogurum. Við flæðilínuna
yrði víða unnið á tvískiptum vökt-
um í framtíðinni og næðist þannig
allt að 16 tíma sólarhringsnýting á
fjárfestingu í landi, en eins og
flestir vita felst hluti af núverandi
yfirburðum frystitogaranna í betri
nýtingu fjárfestingar, þ.e. vinnsla
er linnulaust í gangi 24 tíma sól-
arhringsins. Bætt staða land-
vinnslunnar í kjölfar tvískiptra
vakta við flæðilfnurnar leiði til
þess að skip komi í vaxandi mæli
með hráefnið í land til vinnslu.
Og Haraldur bætti við að tölu-
verðrar endurnýjunar væri þörf í
fiskiskipaflotanum.
Fyrirtækið Þorgeir og Ellert hf.
var stofnað 1928 og er þannig
með eldri fyrirtækjunum í skipa-
smíðaiðnaðinum. Starfsmenn eru
nú á bilinu 70-80. Mikil endur-
skipulagning átti sér stað hjá t'yrir-
tækinu árið 1991. Komu þá með-
al annars inn nýir hluthafar.
Vænta menn mikils af þessari
endurskipulagningu og telja þegar
mikinn árangur orðinn af. Stærstu
hluthafar í Þorgeir og Ellert hf.
eru: Akranesbær, stéttarfélög, Raf-
veita Akraness, Haförninn hf.,
Haraldur Böðvarsson ht'. auk ým-
issa annarra eldri hluthafa.
Nýr framkvæmdastjóri, HaraH'
ur L. Haraldsson, var áður á ba'
firði. Sagði hann að reynsla s,n
sem bæjarstjóri kæmi sér prý^'
lega að notum í nýja startinu-
Eðlilega fælust störf sín sem frarn
kvæmdastjóra skipasmíðastöðvar
innar í stjórn og skipulagningu
t'ramkvæmda og í fjármálann1
sýslu og er þar það sama upp d
teningunum og við stjórn á stóN
sveitarfélagi. Haraldur kvaðs
bjartsýnn á endurreisn fyrirtask|S
ins. Sjálfur hefði hann einbeitt ser
á fyrstu mánuðunum að endur
skipulagningu fyrirtækisins-
Skipulag og áætlanagerð eru hinS
vegar eilífðarstörf í stóru fyrirtæ
og væri því aldrei hægt að segla
slíku starfi lokið. Annar Þatturo
ekki síður mikilvægur, er s'^
markaðsstarfið. Mikilvægt er 3
gera átak í markaðsmálum
væri það komið vel á stað ein5 ^
rakið er hér á undan. Sjálfur sag
ist Haraldur vilja sjá blómleg* ^ 1
irtæki sem sæi 80-100 mannsfV^
ir vinnu og væri ein af meginst°
um atvinnu á Akranesi. Hegar ^
er komið, þá verður grundvö
fyrirtækisins tryggður.