Ægir - 01.05.1993, Page 20
Útflutningur sjávarafurða
Minni botnfiskafli og lækkandi verð leiddu til
nokkurs samdráttar í útflutningsverðmæti
sjávarafurða ntilli áranna 1991 og 1992. Alls voru
flutt út 569.979 tonn af sjávarafurðum 1992 að
verðntæti 71.3 milljarðar króna. Að magni jókst
útflutningurinn um 20.8% frá fyrra ári en virði
útflutningsins dróst saman um 5.4%.
Utflutningurinn 1991 var 471.646 tonn að
verðmæti 75 ntilljarðar króna og var þá að rnagni
sá minnsti síðan 1983, en svipaður að verðmæti
og árið 1990 þegar verðmæti útflutnings
sjávarafurða náði hámarki að raunvirði.
Hlutdeild sjávarafurða í vöruútflutningi
landsmanna var 81.2% árið 1992, en 1991 var
hlutdeild sjávarafurða í vöruútflutningi 81.9% og
78.2% 1990. Tvíþættar orsakir eru fyrir vaxandi
hlut sjávarafurða í verðmæti vöruútflutnings
landsmanna þrátt fyrir minnkandi afla.
Annarsvegar stafar aukin hlutdeild af verðhruni á
afurðum íslensku málntbræðslanna og versnandi
samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar. Hinsvegar
hefur minnkandi framboð botnftsks á
heimsmarkaði valdið verðhækkunum á íslenskum
sjávarafurðum og nýjar áherslur í ráðstöfun
aflans, vinnslu hans og markaðssetningu hafa leitt
til aukins verðmætis útfluttra sjávarafurða.
Magn
Að magni náði útflutningur sjávarafurða
hámarki árið 1986 þegar flutt voru út 718.727
tonn af sjávarafurðum. flar kom þrennt til. í
fyrsta lagi óvenjulega miklar landanir íslenskra
loðnuskipa erlendis. Annað var að loðnuaflinn á
vertíðinni 1985/1986 var nálægt milljón tonnum,
en útflutningur á ntjöli og lýsi vega oftast þungt í
magni sjávarafurðaútflutningsins. Botnfiskafli var
söntuleiðis í góðu meðallagi 1986. I þriðja lagi
var svo sala íslenskra sjávarafurða töluvert meiri
en nam framleiðslu ársins og gekk því nokkuð á
birgðir.
Á árunum 1985-1990 er útflutningur sjávarafurða i
hámarki að því er magn varðar, en þá voru árlega flutt ur
landi að meðalta-li 681 þúsund tonn af sjávaráfurðum. A
þessum árum barst á land mikill loðnuafli og útflutningur
ísfisks var í hámarki. Loðnan brást á vertíðinni 1990/1991 °g
útflutningur ísfisks hefur minnkað með hverju ári síðan
1990, þannig að þrátt fyrir ágætan Ioðnuafla á árinu 1992
veldur minni útflutningur ísfisks því að útflutningur ársins
var 128 þúsund tonnum minni að magni en t.a.m. árið 1985
þegar aflinn var 107 þúsund tonnum meiri, en aflasamsetning
var þá svipuð og 1992.
Verðmœti
Magn útflutningsins segir lítið um virði hans. I töflunni
„Virði útflutnings eftir afurðaflokkum“ sést frantlag
verkunargreinanna til útflutningsverðmætis og samtölur
verðmætis í krónum og dollurum. Krónan var ekki notha’l
sem mælikvarði á þróun verðmætis milli ára og er verðmati
útfluttra sjávarafurða því einnig sett fram í dollurum. Þarna
sést að útflutningsverðmæd íslenskra sjávarafurða hefur verið
yfír milljarður dollara á ári síðan 1987 og farið heldur
vaxandi. Að vísu skekkja sveiflur dollarans gagnvart öðrum
gjaldmiðlum og verðrýrnun hans vegna verðbólgu þessa
mynd nokkuð, en vart leikur þó vafi á að verðmæt*
útflutnings sjávarafurða náði hámarki á árununt 1990 og
Vísitölur útflutningsverðmætis
(100 - 1979)
HOnllarar HSDR
Hnimild: Harjsinla íslanrls
234 ÆGIR 5. TBL. 1993