Tímarit lögfræðinga - 01.04.1953, Side 38
100
Tímarit lögfrceöinga.
hins vegai’ til álita, og kann menn að greina á um það efni.
Má sjálfsagt færa nokkur rök með og móti. Brot þessi
komast varla upp, nema lántakandi kæri þau, en stundum
hirðir hann ekki að gera það, og mætti þá segja, að ekki
sé rík ástæða til þess, að ákæruvaldið skuli alveg ótak-
markaðan tíma láta til sín taka um rannsókn og máls-
höfðun. Hins vegar má svo vera, að lántakandi kæri ekki
af því, að hann sé lánveitanda svo bundinn, hyggi á fram-
tíðarskipti við hann o. s. frv., að hann vilji ekki eða þori
ekki að koma broti upp- En þó sé þjjóðfélagsnauðsyn að
hefta okur og önnur slík brot. Okrarar vinni stundum
neðanjarðar, ef svo má segja o. s. frv. En flestar þessar
ástæður eru jafn ríkar um brot, sem almenn hegningar-
lög taka beinlínis til, og þó fyrnist saksókn fyrir brot
samkvæmt þeim yfirleitt. Ef analógía 81. gr. hegningar-
laganna væri óleyfileg um fyrningu saksóknar fyrir brot
samkvæmt 2.—5. gr. okurlaganna, þá mundi koma fram
allmikið ósamræmi milli meðferðar þessara brota og
brota þeirra, sem í 253. gr. almennra hegningarlaga grein-
ir. Eins og síðar verður sýnt, hafa ýmis — og sennilega
mörg — brotanna samkvæmt 253. gr. í sér fólgin brot,
sem 2.—5. gr. okurlaganna taka til. Saksókn vegna brota
samkvæmt 253. gr., sem þó eru yfirleitt stærri brot, með
því að misneyting hefur átt sér stað, fyrnist samkvæmt
81. gr. Sýnist því, til þess að forðast slíkt ósamræmi,
verða að telja saksókn fyrir brot samkvæmt 2.—5. gr.
okurlaganna fyrnanlega eftir analógíu 81. gr. hegningar-
laganna.
In almennu ákvæði I.—IX. kafla almennra hegningar-
laga, sem ekki eru bundin við þau ein brot, sem í þessum
lögum greinir, taka og til brota samkvæmt 2.—5. gr. okur-
laganna, eftir því sem við getur átt, svo sem 51.—54.,
70., 71., 72. og 74. gr. o. s. frv. Samkvæmt því sýnist t. d.
mega færa sekt niður úr lágmarki því, sem til er tekið í
2. málsgr. 6. gr. okurlaganna, ef refsiiækkunarástæður
samkvæmt 74. gr. eru fyrir hendi eða jafnvel fella refs-
ingu niður.samkvæmt niðurlagsákvæði sömu greinar.