Tímarit lögfræðinga - 01.04.1953, Page 66
128
Tímarit lögfrœöinga.
Frávísun (Hrd. XXIII. 664).
Vélbátur, sem A var talinn hafa keypt af B, bilaði á
ferð hér við land. Vegna leyndra galla, er A taldi hafa
verið á bátnum, vildi hann rifta kaupum. I máli, sem B
höfðaði á hendur A til greiðslu kaupverðs, hafði A uppi
gagnkröfu til skuldajafnaðar um greiðslu kaups skipverja,
meðan á viðgerð stóð. Ósannað þótti, hversu langur tími
hefði farið til viðgerðar á leyndum göllum, og þótti því
að svo stöddu ekki verða lagður dómur á gagnkröfu þessa.
Var henni því vísað frá dómi og ákvæði héraðsdóms um
hana ómerkt.
Annarri gagnkröfu í sama máli var og frávísað, bæði
af því, að hún þótti of seint fram komin, og af því, að
fullnægjandi skýrslur um iiana þóttu ekki vera fyrir hendi.
Framh. í næsta hefti.