Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Qupperneq 9
Sakamál Almenn lögreglumál Sektir án dóms
Utan Utan Utan
Ár Reykja- Reykja Reykja- Reykja- Reykja- Reykja-
vík víkur vík víkur vík víkur
1913 .. . 8 17 0 54 67 62
1914 .. 5 13 0 19 57 135
1915 .. . 8 12 2 1 173 64
1916 .. . 3 10 1 1 45 76
1917 .. . 0 6 1 1 80 64
1918 .. . 15 7 2 0 78 45
Samt. . o* co 65 6 76 500 446
Það liggja ekki fyrir skýrslur um fjölda einkamála á
þessu tímabili, nema fjöldi dæmdra einkalögreglumála,
sem var 14 i Revkjavik og 40 annarsstaðar á landinu.1)
Hins vegar hefur verið talið, að á timabilinu 1904—=
1918 hafi tala venjulegra einkamála á öllu landinu ver-
ið um 1800, þar af helmingur í Reykjavík, en tala einka-
lögreglumála 302, þar af 105 i Reykjavík.2)
Héraðsdómarar sátu sjálfir í dómi og dæmdu mál sjálfir.
Að vísu var héraðsdómara heimilt samkvæmt 2. lið til-
skipunar frá J9. ágúst 1735 um ýmislegt snertandi rétt-
visina og réttarins þjóna i Noregi, sem lagagildi hafði
hér á landi, að fá annan mann í dómarasæti, þegar al-
veg sérstök forföll hömluðu honum frá setu í dómi.
Samkvæmt þessari heimild höfðu bæjarfógetar í Reykja-
vík baft alllengi fulltrúa, en !]>eir unnu ekki önnur dóm-
stöi'f en að lialda fógetarétt, uppboðsrétt og skiptarétt
i vissum tilfellum og kveða upp úrskurði þar í sérstökum
forföllum bæjarfógeta.
Bæjarfógetinn hafði sjálfur á hendi dómsrannsóknir
1) Hagskýrslur Islands 52. Dómsmálaskýrslur árin 1913—
1918. Reykiavík, 1927, bls. 18—23.
2) Lárus H. Bjarnason: Dómaskipunin. Andvari, 47. árg., 1922.
bls. 167—168.
Timaril löf/fr/vðinga
3