Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 13

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 13
ara, en ekki væri lnctla á því að þeirri lieimild yrði mis- beitt. Siðan sagði Einar: „Annars vil ég bæta því við, að það er nokkurn veginn sjálfgefið, að dómarar í kaupstöðum mundu eftir fremsta megni rannsaka sjálfir og dæma þau mál, sem mestu skiptir, svo sem morð eða stórglæpi.“ Bjarni frá Vogi fann frumvarpinu margt til foráttu og sagði meðal annars: „Það finnst mér undarlegt, að fela má þessum mönn- um sakamálsrannsókn á ábvrgð annars manns.“ „Þar sem ég á mál mín undir dómaranum liér i Reykja- vík get ég lýst því yfir, að ég vildi ekki láta dæma mig af dómara, sem dæmir á annars manns ábvrgð en ekki sína eigin.“ „£g tel það skipta miklu máli, hvort maður er saklaus dæmdur fyrir verknað, sem talinn er svívirðilegur og getur varðað alla heill hans, eða hvort hann er sýknaður af öllum áburði. Slík mál vil ég ekki að farið sé gálaus- lega með, og til slíkra starfa vil ég ekki trevsta hverjum þeim, sem fram býðst.“ „Væri ég bæjarfógeti hér í Reykjavik, mundi mér ekki detta i hug að fela öðrum að fara með dómsvaldið en sjálfum mér.“ „Það mun og rétt hjá sessunaut minum (Einari Arn- órssvni), að bæjarfógetar geti verið vandaðir menn, en þeir geta líka verið breyskir menn, engu siður en aðrir, og gæti verið, að þeir hefðu tilhneigingu til að skjóta fram af sér leiðinlegum vandamálum, svo sem kvenna- farsmálum, og koma iþeim yfir á aðra eða láta það fara um hendur fulltrúanna.“ Einar svaraði Bjarna og sagði þá meðal annars: „Við erum eklci sammála um muninn á eigin ábvrgð og annars ábyrgð. Ég held að hér komi aðeins til greina skaða- bótaábyrgð þvi að ekki er liægt að 'hegna bæjarfógeta fyrir Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.