Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Síða 17

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Síða 17
þess, að með hinni munnlegu málfærslu aukast afskipti dómara af málum mjög frá bvrjun.“ Lögfræðinganefndin frá árinu 1934 samdi því næstfrum- varp til laga um meðferð opinljerra mála, og var það að beiðni dómsmálaráðberra flutt af allsherjarnefnd efri deildar á Alþingi árið 1939. Samkvæmt frumvarpinu skyldi liéraðsdómari geta lát- ið fulltrúa sinn með lögfræðiprófi framkvæma rannsókn opinberra mála og kveða upp úrskurði, sem nauðsynlegir væru liennar vegna, stýra málsmeðferð og kveða upp dóma í bvaða málum sem væri. Frumvarpið dagaði uppi og hlaut sömu örlög á Alþingi árið 1940, þegar Bergur Jónsson bar það einn fram. Arið 1939 voru sett ný lög um dómsmálastörf, lög- reglustjórn, gjaldbeimtu o, fl. í Reykjavík, nr. 67, 31. desember 1939, sem öðluðust gildi 1. janúar 1940, og úr gildi felld fyrri lög nr. 67, 1928 um sama efni. Með hinum nýju lögum var stofnað emljætti sakadóm- ara, sem fara sk\ldi með opinber mál og barnsfaðernis- mál, rannsókn þeirra fvrir dómi og utan dóms og dóms- uppsögn. Lögmaður skyldi fara með önnur dómsmál. Arið 1943 voru enn setl ný lög um dómsmálastörf, lög- reglustjórn, gjaldheimtu o. fl. i Reykjavík, nr. 65, 16. des- ember 1943, sem öðluðust gildi 1. janúar 1944 og jafn- fi’amt úr gildi fellld lög nr. 67, 1939 um sama efni. Með hinum nýju lögum var lögmannsembættið lagt niður, en í stað þess voru stofnuð tvö ný embætti, borg- ardómara og borgarfógeta. Skvldi borgardómari fara með einkamál önnur en barnsfaðernismál, en borgarfógeti fógetagerðir, ujiplioð og skiptamál. Embætti sakadómara var stofnað skömmu eftir upp- baf seinni beimsstvrjaldarinnar og stuttu síðar var Island bernumið. Upp risu vandamál styrjaldar og liersetu. Revkjavík gjörlireyttisl með binu fjölmenna erlenda ber- bði, sem dvaldi í bænum og nágrenni hans eða fór um Reykjavikurböfn. Ibúum bæjarins fjölgaði stórum, meðal Timarit lögfræðinga 11

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.