Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 19

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 19
„1 Reykjavik sæta opinber niál rannsókn, nieðferð og dómsuppsögn sakadómara, er vera skulu þrír til fimm eftir ákvörðun dómsmálaráðlierra, og skipar bann einn þeirra forstöðumann embættisins. Starfar liver þeirra sjálfstætt og á sína ábyrgð að málum þeim, sem iiann fær til meðferðar samkvæmt ákvörðun forstöðumanns, enda skiptir liann störfum með sakadómurum að öðru leyti, og hefur yfirstjórn embættisins og fyrirsvar ul á við.“ 1 athugasemdum við frumvarpið var gerð grein fvrir nýmæli þessu, og segir þar: „í þriðju málsgrein er 'það nýrnæli, að sakadómarar í Revkjavík skulu vera 3 til 5 eftir ákvörðun dómsmála- ráðherra. Rök til þessa ákvæðis er hinn mikli og sívax- andi fjöldi mála, sem nú verður að rannsaka, dæma og afgreiða í Reykjavik. Kemst einn dómari ekki til þess að fara með nema litinn hluta af þeim málum, svo að raunverulega fara fulltrúar sakadómara nú sjálfstætt með þau mál, sem hann felur þeim, en dómar i sakamálum eru þó kveðnir upp af sakadómara, þótt hann hafi raun- verulega ekki farið með málin og þvi ekki iiaft aðslöðu til þess að stýra rannsókn eða kvnnast málinu nægilega að öðru leyti. Hefur svo verið nú um árabil. Sýnist þvi einsætt, að sú breyting verði á gerð, að fullábvrgir dóm- arar rannsaki og dæmi málin i sjálfs sín nafni. Dómara- störf j>essi eru svo mikilvæg, að hina hæfustu menn þarf til þess að gegna þeim. En meðan svo er að þeim búið, sem nú er, má gera ráð fvrir því, að þeir leiti sér betri starfa og fari úr stöðunni, jafnskjótt og þeir liafa fengið þar æfingu. Með þvi að binir ábyrgu dómarar koma í stað núverandi fulltrúa, á ekki að verða af þessu kostnaðar- auki, sem um munar, og alls ekki í hann horfandi vegna endurhóta þeirra á núverandi skipulagi, sem ákvæði frum- varpsins mundu liafa í för með sér.“ Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra fylgdi frum- varpinu úr hlaði á Alþingi og mælti meðal annars: TímariI lögfnvöinga 13

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.