Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 40

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 40
rétt að greina sundur umboðsvald og dómsvald a.m.k. í Reykjavík og máske annars staðar. En mál þetta er vandasamt og viðurhlutamikið, meðal annars vegna landshátta hér, fámennis og fjárhags, og sýna tillögur milliþinganefndar, er skipuð var árið 1914, um sundurgreining umboðsvalds og dómsvalds1) og við- tökur þær, er tillögurnar fengu, það ljóslega. Er fráleitt að hiða með jafn sjálfsagða og auðvelda brevtingu á skipan sakadóms og borgardóms í Reykja- vik, sem skipun fleiri sjálfstæðra dómara þar er, til þess alveg óákveðna tíma, er húið væri að finna frambúðar- lausn á vandamáli héraðsdómaskipunar landsins alls. Þegar hafa verið rakin nokkur hinna mörgu og mikil- vægu raka fyrir þessari hreytingu á dómaskipun í Reykja- vík. Rökin eru í stuttu máli meðal annars þessi: 1. Skipun fleiri sjálfstæðra dómara í sakadómi og borgardómi í Reykjavík er í reyndinni aðeins lögfesting á þegar orðnum hlut, staðfesting á þeirri staðreynd að fulltrúar sakadómara og l^orgardómara fara nú sjálfstætt með mál i dómi og dæma þau i eigin nafni. 2. Hæstiréttur leggur fulla dómaraábyrgð á fulltrúa og t. d. vítir þá fyrir mistök þeirra, en ekkí embættis- imanninn, sem þeir eru fulltrúar hjá. Fulltrúar bera skyld- ur dómara, en njóta eigi réttinda þeirra. 3. Það er samkvæmast ákvæðum stjórnarskrárinnar um sjálfstæði dómsvaldsins og ákvæðum almennra laga um iögkjör héraðsdómara, að dómfulltrúar þeir, sem kveða upp fleiri dóma í héraði en nokkrir embættisdóm- endur eigi að njóta iögkjara þeirra, en nú njóta þessir fulltrúar ekki einu sinni venjulegra lögkjara embættis- manna. 1) Skýrslur og tillögur milliþinganefndar þeirrar, er skipuð var með konungsúrskurði 9. desember 1914, I. um eftirlauna- 'rétt og launamál, II. um sundurgreining umboðsvalds og dóms- valds. Reykjavík, 1916. 34 TímariL lögfræðinya

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.