Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Blaðsíða 47
þeirra er sýknaðir voru var reist á því, að framferði þeirra
mætti rekja til annarra orsaka en áfengisneyzlu, svo sem
veikinda. Þvi skvldi veitt athygli, að á þessu tímabili var
ekki reynt að bera árangur rannsóknarinnar fram í dómi.
Rannsókn þessi, sem lögreglan lét gera, var framkvæmd
fvrst og fremst til þess að þrengja grundvöll ákæru, enda
voru einungis þeir ákærðir, er prófun sýndi að hefðu
0,15% áfengis i blóði eða meira.
Saksóknarinn í Lima hóf nú að beita árangri blóðrann-
sókna fyrir dómstólum. Ef sakborningur liefur verið svipt-
ur frelsi, er slík rannsókn einungis notuð sem sönnunar-
gagn í Lima, að sakborningur hafi samþykkt, að hana
mætti framkvæma. Þessi aðferð til öflunar samþykkis er
viðhöfð í varúðarskvni, svo að ekki sé bægt að bera fram
kvartanir vegna skerðingar á persónurétti.
Á þvi tímabili, sem notað er til samanburðar, eftir að
nýmæli þetta hafði verið tekið upp, komu greinilegar
breytingar fram í skýrslum. Ekki varð lengur um neinar
sýlcnanir að ræða, þar sem blóðrannsókn hafði verið gerð.
Þýðingarmesti þáttur skýrslnanna er sá, að 83% tilfella
játuðu sakborningar sekt sína eftir að farið var að beita
rannsóknunum, sem sönnunargögnum en voru 66% áður,
Dómsmál urðu og aðeins 8 af 118 tilfellum.
Málfærslumenn vissu, að erfitt yrði að fá skjólstæð-
ínga sína sýknaða þegar blóðrannsókn hafði verið lögð
fram fyrir rétt til sönnunar.
Er íslenzkir lögfræðingar lesa þetta, hljóta þeir að veita
sérstaka athygli þeim mismun, sem er á beitingu laga um
ölvun við akstur í Bandarikjunum og á Islandi.
1 Bandaríkjunum er ríkjandi venja nú, að sakfella ekki
þann, er ekur eftir að hafa neytt áfengis, nema þvi aðeins
að rannsókn sýni, að í blóði hans sé 0,15% alkohól eða
meira; þvi er auðvelt að skilja þær mótbárur, er fram
koma meðal bandarískra starfsmanna gegn islenzkum rétt-
arvenjum, sem leyfa sakfellingu enda þótt áfengismagn
sé miklu lægra en áskilið er i bandarískum lögum.
Timarit lögfræöinya
41