Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Page 52

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Page 52
ing söniu eigna er óheimil, nema til tryggingar skuld- um, sem til er stofnað vegna kaupa þeirra eða byggingar- kostnaðar. d) Mannvirki þau, sem gerð kunna að vera, samkvæmt 10. gr. B a, og nauðsynleg eru vegna þeirra mála, sem þar um getur, má ekki selja. Veðsetning slíkra eigna er óheimili, nema til tryggingar skuldum, sem til er stofn- að vegna þeirra. e) Samþykki ráðuneytisins þarf til þess að reka áhættusaman atvinnurekstur, svo sem útgerð, iðnað og verzlun. Ráðuneytið skal leyta umsagnar lilutaðeigandi sýslunefndar, áður en það veitir hreppum slíkt sam- þykki. f) Samþykki sýslunefndar þarf til þess, að ályktun hreppsnefndar sé gild um eftirtalin atriði: 1. Lántökur vegna hreppsins, sem nemi meiru en álögð útsvör í hreppnum það ár. 2. Sala eða veðsetning fasteigna hreppsins svo og kaup nýrra fasteigna. 3. Ölögboðnar skuldbindingar, sem gilda eiga langan tíma. Nú synjar sýslunefnd um samþykki til ráðstöf- unar, sem um ræðir í staflið þessum, og er þá lirepps- nefnd rétt að bera málið á sveitarfundi, sbr. 31. gr., undir atkvæði. Hljóti ályktun hreppsnefndar % hluta atkvæða, skal hún vera gild án samþykkis sýslu- nefndar. g) Öðrum takmörkunum, sem lög kunna að ákveða.“ 1 III. kafla laganna eru itarleg ákvæði um fjárreiður sveitarfélaga. Sérstök ástæða er til að benda á undirkafl- ana: f) um fjárþröng sveitarfélaga og g) um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar. M. a. segir þar i 82. gr.: „Eigi má framkvæma aðför í þeim eignum sveitarfélaga, sem óheimilt 'er að selja eða veðsetja sam- kvæmt 11. gr., og eignir sveitarfélaga verða eigi teknar lil gjaldþrotaskipta.“ 1(5 Timuril lögfrœðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.