Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 53

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 53
Á sviði reísiréttar iná einkum nefna lög nr. 31, 21. marz 1961, um breylingu á almennum hegningarlögum nr. 19, 12. febrúar 1940. Er þar mjög dregið úr l.eim- ildum til þess að svipta sakfellda menn réttindum eða telja brot fela i sér, að hinn sakfelldi bafi eigi lengur óflekkað mannorð. Hegningarlögin liafa nú verið gefin út sérprentuð ásamt breytingum laga nr. 31/1961 og greinargerð. Verða lögin því eigi rædd nánar bér. Nýmæli á sviði refsiréttar eru og lög nr. 18, 15. marz 1961 um ríkisfangelsi og lög nr. 21, 15. marz 1961, um héraðsfangelsi. Eru þar að mestu lögfestar tillögur Yaldi- mars Stefánssonar sakadómara, sem birtust í þessu riti 1960, sbr. 1. og 2. liefti. A sviði sifjaréttar má belzt nefna lög nr. 25, 23. marz 1961, um breytingu á lögum nr. 20, 20. júní 1923, um réttindi og skyldur bjóna. Samkvæmt hinum nýju lögum gilda lög nr. 20/1923 frá 1. sept. 1961 einnig um lijón, sem gengu i hjúskap fvrir 1. jan. 1924, og er þar með felld úr gildi hin tvöfalda fjármálaskipan lijóna, sem ríkt befur til þessa. Nýmæli á sviði réttarfars eru lög nr. 57, 29. marz 1961, um breytingu á lögum nr. 27 5. marz 1951 um meðferð opinberra mála. Með þessum lögum er ákæruvaldið tekið úr bendi dómsmálaráðherra og fengið nýjum em- ættismanni — saksóknara rikisins. Jafnframt er og nýrri skipan komið á sakadómaraembættið í Reykjavík, þannig, að þar skulu skipaðir 3—5 sakadómarar og sé einn þeirra yfirsakadómari. Þessir dómarar starfa sjálfstætt og á sína ábyrgð að málum þeim, sem þeir fá til meðferðar samkv. ákvörðun yfirsakadómara, enda skiptir bann störfum með sakadómurum að öðru leyti og liefur vfirstjórn embættis- ins og fvrirsvar út á við. Almennt mun talið, að lnn nýja Timaril löíjfnvðinya 47

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.