Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 63

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1961, Side 63
HatiMA þwAte'niA- Bók.sú, sem hér birtist, er án efa í flokki merkustu ævi- sagna á íslenzku. Höfundur hennar, dr. Hannes Þor- steinsson, þjóðskjalavörður, átti langa og viðburðaríka ævi. — Hann var í innsta hring íslenzkra stjórnmála um langt skeið, bæði sem rit- stjóriÞjóðólfs, aiþingismaður og áhrifamaður í Heima- stjórnarflokknum. Hann átti hlut að lausn viðkvæmustu vandamála í íslenzkri sjálf- stæðisbaráttu og kynntist miklum fjölda íslenzkra og erlendra manna. Dr. Hanness var einnig óvenjulega traustur fræði- maður. Stórvirki hans í ís- lenzkri sagnfræði og mann- fræði munu ávallt skipa hon- um í röð fremstu afreks- manna í þeim greinum, — Hann andaðist árið 1935. Dr. Hannes ritaði ævisögu sína á árunum 1926—28. Síðan innsiglaði hann hand- ritið með þeim fyrirmælum, að innsiglið mætti ekki brjóta fyrr en á aldarafmæli hans. Ævisaga dr. Hannesar er hreinskilið og hispurs- laust ritverk. Höfundurinn er óhræddur að flíka skoð- unum sínum á mönnum og málefnum. Hann ritar góða og fagra íslenzku, er stál- minnugur, skýr í hugsun og hefur næga kímnigáíu. Þetta er bókín, sem geymd var undir innsigli í aratugi og enginn mátti sjá fyrr en á aldarafmæli höfundarins. ALMGNNA BÓKAFÉLAGIÐ

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.