Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Síða 11
í lok síðasta þings lögðu nokkrir þingmenn fram til-
lögu til þingsályktunar um athugun á brevttri héraðs-
dómaskipun. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu, en fram komu
í greinargerð hennar og við umræðu þau sjónarmið, að
þessi mál þörfnuðust endurskoðunar.
Ætla verður, að fimm ára skýrslan um meðferð dóms-
mála í landinu og álitsgerðir dómara samtímis þeirri
gagnasöfnun veiti mjög verðmætar upplýsingar í sam-
bandi við hugsanlegar breytingar á dómaskipun. En þeg-
ar jafnframt er haft í huga, að sýslumannsembættin
munu vera meðal elztu embætta landsins, virðist eðli-
legt, að full gát verði höfð á breyttri skipan þessara mála.
Hins vegar er ekld óeðlilegt, að endurbætur haldist í
hendur við aðrar umbætur i stjórnsýslu landsins.
Dómsmálaráðherra hefur því með bréfi 7. október 1966
ákveðið að skipa sjö manna nefnd til þess að athuga breyt-
ingar, sem gera mætti á dómaskipuninni og til hóta mættu
teljast, og jafnframt að athuga og gera tillögur um breyt-
ingar á löggjöf og framkvæmd varðandi meðferð dóms-
mála í landinu. Nefndin er þannig skipuð, að einn fulltrúi
skal tilnefndur frá hverjum eftirtalinna aðila: Hæstarétti,
lagdeild Háskólans, Dómarafélagi íslands og Lögmanna-
félagi íslands. Enn fremur eiga sæti í nefndinni yfirborg-
ardómarinn í Reykjavík, yfirsakadómarinn í Reykjavík og
ráðuneytisstjórinn í dómsmálaráðuneytinu, sem er for-
maður nefndarinnar. Gert er ráð fyrir því, að nefndin
hafi samband við og fylgist með störfum nefndar þeirrar,
sem félagsmálaráðherra skipaði til að endurskoða skipan
sveitarstjórnarumdæmanna. Nefndinni er veitt heimild
til þess að ráða sér starfskrafta, og er gert ráð fyrir, að
kostnaður af störfum hennar greiðist af kostnaði við
dómsmálastjórnina í landinu.
Rétt hefur þótt að gera Alþingi grein fyrir þessu máli
um leið og skýrslan um meðferð dómsmála er hér með
lögð fyrir þingið.
Tímcirit lögfræðinga
o