Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Side 40
3. Um einkamál sérstaklega.
A. Brevtt löggjöf.
Fáir aðrir en vfirborgardómarinn i Reykjavík víkja að
atriðum, sem lúta að brevttri löggjöf. Hann telur:
a) Að til bóta yrði að lögfesta frumvarp það til laga
um meðferð einkamála í héraði, sem án árangurs hefur
verið lagt fyrir Alþingi, en ekki fengið afgreiðslu þar.
1d) Að dómsmálaskipunina í heild þurfi að endurskoða,
þ. á m. embættaskipunina í Revkjavík. Að þessu atriði er
einnig vikið í bréfi lagadeildar Háskólans og einnig gerir
það sýslumaður Húnavatnssýslu, en hann telur, að til
athugunar væri að taka dómarastarfið að nokkru frá
starfi sýslumanna.
c) Yfirborgardómari bendir og á, að lagabrevtingu
mundi þurfa, ef taka ætti upp vitna- og aðiljaskýrslur vél-
rænt eða vélrita ætti jafnóðum framburði í þinghaldi.
B. Framkvæmdaatriði.
a) Skipulagsbreytingar innan embætta. Er einkum að
þessu vikið, þar sem um borgardómaraembættið í Reykja-
vík er fjallað, sbr. það, sem fram kemur hjá yfirborgar-
dómara, í bréfi Lögmannafélags íslands og í framhaldi af
greinargerð þess hjá Yagni E. Jónssyni hrl. Það, sem eink-
um virðist valda töfum á málum hjá þvi embætti, er,
hversu seint dómari sá, sem dæma á, fær máiið í sínar
hendur. Þvrftu þvi skipulagsbrevtingar að miða að þvi,
að dómari sá, sem dæmir, fengi hvert mál fyrr í hendur.
b) Þá er undirbúningi aðila og lögmanna þeirra alláfátt
og valdi það töfum á málum, en af þvi leiði, að þeir æski
endurtekinna fresta. Kemur þetta fram m. a. lijá yfir-
borgardómaranum í Reykjavík, í bréfi lagadeildar Háskól-
ans og ýmsum fleirum.
c) Bent er loks á mikla málamergð og sivaxandi mála-
fjölda, sbr. þar einkum það, sem kemur fram hjá yfir-
borgardómaranum í Reykjavík, svo og skýrslur ]iær, sem
hér eru birtar.
Hér fara loks á eftir kaflar úr bréfum þeirra aðila, scm
gerðu grein fvrir því, hverjar væru helztu orsakir fyrir
34
Timarit lögfræðinga