Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Qupperneq 41
drætti á meðferð dómsmála og gerðu tillögur um breytta
löggjöf eða framkvæmdaatriði, sem stuðlað gætu að
skjótari meðferð mála.
Hæstiréttur íslands.
Bréf Þórðar Evjólfssonar, foi'seta Hæstaréttar, dagsett
21. okt. 1964, hljóðar svo:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur með bréfi, dags.
1. júlí 1964, sent Hæstarétli afrit af þingsályktun, er sam-
þykkt var á Alþingi 13. maí 1964, um ráðstafanir til að
hraða meðferð dómsmála. Æskir ráðuneytið álitsgerðar
Hæstaréttar um það, hverjar ráðstafanir yrðu taldar hezt
til þess fallnar að ná þvi markmiði, sem þingsályktunin
beinist að.
Um málefni þetta vill Hæstiréttur taka eftirfarandi
fram:
1. Hæstiréttur telur ekki ástæðu til að ræða tímabilið
frá þvi að máli er stefnt til héraðsdóms og þar til dómur
gengur í héraði, þar sem héraðsdómarar munu gefa álits-
gerðir um þann þátt málsmeðferðar.
2. Um tímabilið frá þvi að áfi'ýjunarstefna til Hæsta-
réttai' er út, tekin og þar til lögmenn hafa skilað Hæsta-
rétti ágripi og greinargerðum, þannig að mál sé hæft
til flutnings þar, sbr. III. kafla laga nr. 57/1962, er þetta
að segja:
Með greindum lögum nr. 57/1962, um Hæstarétt ís-
lands, voru setl ýmis nýmæli, sem eiga að stuðla að greið-
ari og hraðari málsmeðferð en áður tiðkaðist á því stigi
máls, sem hér ræðir um. Skal þar sérstaklega vísað til
41. gr. laganna um fresti. Akvæði þessi munu stuðla að
hraðari rekstri dómsmáia fyrir Hæstarétti. En algert skil-
yrði þess, að unnt sé að beita ákvæðum 41. gr. um stutta
fresli, er það, að afgreiðsla dómsgerða í héraði fari fram
án tafar, þegar þess er æskt vegna áfrýjunar málsins.
3. Eftir að Hæstarétti bafa borizt ágrip og greinargerð-
ir, þannig að málin séu tilbúin til flutnings, er ekki og
hefur aldrei verið um neinn drátt á þeim að ræða, en
Tímarit lögfræðinga
35