Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Page 51
un dómara og fulltrúa. Árið 1964 voru boðunarmenn 4
en dómendur 9 að tölu. Hér við bætist og að boðun manna
verður erfiðari með ári bverju — eftir því, sem borgar-
búum fjölgar og borgarsvæðið stækkar. Það er því gleði-
efni að á þessu ári mun að öllum líkindum ijætast við
einn boðunarmaður við dóminn og þarf þá að bæta við
einni bifreið fyrir hann. Þessi fjölgun nægir þó vart og
þvrfti að bæta við enn einum boðunarmanni, ef vel ætti
að vera.
7. Einsætt er að það dregur verulega úr vinnuafköst-
um dómara, ef hann þarf sjálfur að rita alla framburði
sökunauta og vitna i þingbók, enda má það heita ógjörlegt
i umfangsmiklum og flóknum sakamálum. Það er eitt af
meginatriðum til að hraða rekstri dómsmála, að dómari
hafi ritara við prófun þeirra. Á undanförnum árum hafa
laganemar oft verið fengnir til dómritunar og hefur það
gert mikið gagn. Þá hefur alveg nýlega verið notuð heim-
ild dómsmálaráðuneytisins til að bæta við einum ritara
við sakadóm Reykjavíkur vegna dómritunar og hlýtur sú
ráðstöfun að hraða gangi mála. Þó er Ijóst, að einn dóm-
ritari nægir ekki, þegar háð eru samtímis mörg dómþing
i sakadómi 7— en það er oft.
8. í sambandi við ritun framburða í dómþingi er rétt
að vekja athygli á þeirri heimild réttarfarslaga að hrað-
rita og taka á talvél skýrslur i ojnnlæru máli. Þessi heim-
ild hefur vart verið notuð. Ástæða er til að athuga gaum-
gæfilega hvort hraðritun og taka skýrslna á talvél sé ekki
til hagræðis og flýtis. Þá dettur mér í hug, hvort ekki væri
hentugt að revna vélritun í dómþingi, annað hvort þannig,
að frumritið væri blað í þingbók (til þess þyrfti liklega
lagabreytingu) eða þannig, að frandnirðir sökunauta og
vitna væru vélritaðir í dómþingi og lagðir svo þar sti’ax
fram sem frumskjal. í báðum tilfellum sparaðist vélritun
siðar.
9. Ofl þarf að fá rannsóknargerð sérfræðings áður en
dómur getur gengið, t. d. endurskoðun á bókhaldi fyrir-
lækis og rannsókn á geðheilbrigði sökunauls. Stundum
Tímarit lögfræðinga
45