Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Side 35
ttieð lögum 6. október fyrra ár er Hæstiréttur stofnaður,
dómstóllinn, sem nú á að taka til starfa. Ég sagði áðan
»aftur“ um flutning dómsvaldsins inn í landið, og miðar
það til þess, að endur fyrir löngu hlutu íslenzk dómsmál
1 ullnaðarúrlausn hér innanlands fyrir íslenzkum dómstóli.
A lýðvalds- eða þjóðríkis-tímum þessa lands fengu innan-
lands dómsmál fullnaðarúrslit hjá dómstólunum á alþingi
við öxará, fjórðungsdómunum og fimmtardómnum, og
l>að er ekki fyr en nokkrum árum eftir að landið gekk
undir konungsvald, að heimilað er að skjóta íslenzkum
uiálum undir dómstól erlendis til síðustu úrlausnar. Það
ei' fyrst eftir að Jónshók var lögtekin eftir 1280, að laga-
heimild finnst fyrir því, að skjóta megi dómum lögmanna
°g lögréttunnar, er |)á fóru með æðsta dómsvaldið innan-
lands, út úr landinu undir dóm konungs, og skyldi hann
skera úr málunum með ráði vitrustu manna. Vitanlega á
lögbók hér við réttan Islands konungs eftir gamla sátt-
mála, og varla getur það verið efamál, að lögbók vor hef-
Ur haft Islendinga fyrir augum, er hún hér nefnir vitrustu
lUenn. En í framkvæmdinni varð þetta svo, að málin, er
héðan var stefnt undir konungsdóm, voru lögð undir rík-
isráðið til úrlausnar, fyrst hið norska og síðar hið danska.
Ög var þannig farið með dómsmál vor alla leið fram yfir
1660, unz Hæstiréttur var stofnaður í Danmörku. Konung-
Ur varð þá forseti Hæstaréttar, og var það þá all-eðlilegt
uð íslenzkum málum væri skotið til hans í Hæstarétti og
skiljanlegt, að heimildin fyrir því væri enda talin áður
áminnst ákvæði Jónsbókar. Hefur íslenzkum málum síðan
verið skotið til hæstaréttar Danmerkur til síðustu úr-
lausnar allt til loka síðastliðins árs, og varð engin breyting
a því, er konungur hætti að vera forseti réttarins fyrir 70
árum síðan. -— En með áðurnefndum lögum 6. okt. fyrra
ár er dómsvald þessa réttar í íslenzkum málum flutt hing-
að heim, og fengið í hendiir innlendum dómstóli, liæsta-
vétti þessa lands. Þessi ráðstöfun löggjafans mun verða
talin á réttum rökum bygð, því að eigi verður það talið
Tímarit lögfræðinga
33