Tímarit lögfræðinga - 01.01.1971, Síða 41
hinn tiltekni frestur er liðinn, án þess að endurupptöku
hafi verið krafizt.
Hér á eftir verða raktar tvær skilyrtar sáttir, sem gerðar
voru á hæjarþingi Reykjavíkur á árinu 1969. Sáttirnar eru
einnig dæmi um réttarsátt um sjóveð.
„Stefndi, A, lofar að greiða stefnanda, B, kr. 32.000.00
með 7% ársvöxtum frá 1. október 1968 til greiðsludags
og kr. 7.100.00 i málskostnað, allt fyrir 13. ágúst n. k.
Greiðslustaður er skrifstofa AA, lögmanns, B-götu 8,
Reykjavík. Sjóveðréttur í m.b. S er viðurkenndur fyrir
ofangreindum fjárhæðum.
Heimilt er fyrir báða aðila að afturkalla sátt þessa
innan 7 daga frá undirritun hennar. Skal þá skrifleg
beiðni um endurupptöku málsins hafa borizt formanni
dómsins innan greinds frests“.
„Stefndi, A, lofar að greiða stefnanda, B, kr. 20.400.00
með 7% ársvöxtum frá 1. maí 1968 til greiðsludags og
kr. 5.340.00 í málskostnað, allt fyrir 1. júli 1969. Sjóveð-
réttur í m/b E er viðurkenndur fyrir framangreindum
fjárhæðum. Greiðslustaður er skrifstofa AA, hrl., B-götu
30, Reykjavík.
Sáttin er þó á þeirri forsendu reist, að leggi stefndi
fram kvittun fyrir kr. 5.000.00, sem er ekki í samræmi
við þær kvittanir, sem nefndar eru í dómsskjali nr. 9,
fyrir greiðsludag, þá lækkar krafan í kr. 15.500.00 og
málskostnaður í kr. 3.700.00, en að öðru -leyti breytist
sáttin ekki“.
Síðasti þáttur sáttarinnar, þ. e. lok liennar, er yfirleitt
talinn vera réttarfarsathöfn, en réttarfarsathafnir leyfa
venjulega ekki nein skilyrði, sbr. 4.1.1. Réttaröryggi levfir
því ekki, að sá þáttur sé skilyrðum bundinn frekar en
endranær. Af þeim sökum leyfa réttarfarsreglur það ekki,
að óvissa ríki um það, hvort máli sé lokið eða eklci.
Ekki mætti því t. d. skilorðsbinda sátt þannig, að mál sé því
aðeins lokið, að efnishlið sáttarinnar sé gild.
Komi skilvrðið fram, á að endurupptaka gamla málið.
Tímarit lögfræðinga
35