Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Page 4

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Page 4
hefur því gegnt starfinu nær 36 og % ár, eða lengur en nokkur annar. Gizur lauk á sínum tíma prófi i lögfræði með miklum ágætum, en stundaði síðan framhaldsnám erlendis. Áður en hann tók sæti í Hæstarétti, sinnti hann ýmsum störf- um í þágu ríkisins. Hann starfaði m. a. í dómsmálaráðu- neytinu og var skrifstofustjóri (ráðuneytisstjóri) áður en hann varð hæstaréttardómari. Þá var ákæruvaldið í dóms- málaráðuneytinu og starfssviðið víðtækara en nú. Gizur hefur auk þess, sem að framan er vikið að, starfað mikið að undirbúningi laga á margvíslegum sviðum og ritað ýmislegt um lögfræðileg efni. En aðalstarf hans hefur dómarastarfið verið, og hæfileikar lians koma væntanlega bezt fram á því sviði, enda bera dómar þeir fjölmargir, sem hann hefur samið, vott um glöggskyggni hans, þekk- ingu á lögum og rétti, — innlendum og erlendum — mann- vit og mikla þekkingu á íslenzku máli, sem löngum hefur verið honum kært viðfangsefni. T. B. L. 9 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.