Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Blaðsíða 29
Frá Lögfræðingafélagi Islands
Lögfræðingafélag Islands hélt aðalfund sinn þann 20.
desember s.l. I skýrslu formanns, Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar, kom fram, að starfsemi félagsins hafði
verið með mosta móti á liðnu starfsári, því auk venju-
leg'ra fræðslufunda, hélt félagið í fyrsta sinn endurmcnnt-
unarnámskcið. Námskeið þetta, sem fjallaði um fasteignir,
þótti takast með ágætum. Þátttakendur á námskeiðinu
voru 75, en fyrirlesarar 12. I ráði cr að gefa fyrirlestrana
út og hcfur þó nokkur undirbúningsvinna verið innt af
hendi til þcss að svo megi verða og er í ráði, að bókaút-
gáfan Hlaðbúð sjái um útgáfuna í samvinnu við félagið.
Fræðslufundir voru samtals 5 á árinu og voru fyrir-
lcsarar á þeim dr. Gunnar G. Schram, sem ræddi um land-
helgina í ljósi þjóðaréttar, Þórir Bergsson, tryggingafræð-
ingur, scm ræddi um ákvörðun bóta fyrir lífs- og likams-
tjón, dr. Þórður Eyjólfsson, fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari, sem ræddi um höfundarétt, Garðar Gislason, lögfræð-
ingur, sem ræddi um nokkur viðfangsefni réttarheim-
speki, og prófessor Þór Vilhjálmsson, cn erindi hans fjall-
aði um rekstur cinkamála.
Á fundinum fór fram stjórnarkjör. Formaður var kjör-
inn Þór Vilhjálmsson, prófessor, í stað Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar, alþingismanns, sem haðst undan endur-
kjöri. Þorvaldur hefur verið formaður félagsins í G ár, og
voru honum á fundinum færðar þakkir fyrir góð störf 1
þágu félagsins.
Varaformaður var kjörinn Jónatan Þómiundsson, pró-
fessor, en aðrir í stjórn Sigurður Hafstein, héraðsdóms-
lögmaður, sem gegnir störfum gjaldkera, Hrafn Braga-
son, lögfræðingur, sem gegnir störfum ritara, Stefán Már
Stefánsson, borgardómari, Friðrik Ölafsson, stjórnarráðs-
fulltrúi, og Knútur Bruun, héraðsdómslögmaður.
Tímarit lögfræðinga
27