Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Side 7

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Side 7
eign o. s. frv.), en með slíkum hugtökum er safnað saman efnisþáttum, sem eru sameiginlegir mörgum þeim athöfn- um, tengslum og réttarsamböndum, sem lögin mæla fyrir um og koma mönnum í. Þannig fjalla þessar ólíku fræði- greinar, réttarsagan, réttarfélagsfræðin og lögfræðin hver um réttinn cða réttarkerfið á sinn sérstaka hátt. Engin skvr og ákveðin mörk skilja að viðfangsefni þessara fræðigreina og viðfangsefni þau sem fjallað er um í réttarheimspeki. Þetta á sérstaklega við um hug- myndakerfið sem notað er í lögfræðinni við að setja rétt- arreglurnar skýrt fram og kenna þær. En meira að segja eru sumar sagnfræðilegar og félagsfræðilegar athuga- semdir nægilega almenns eðlis til þess að réttarheimspek- ingur getur ekki látið þær óáreittar. Ein leiðin, og senni- lega sú hagkvæmasta, til að greina á milli viðfangsefna þessara fræðigreina og réttarlieimspeki, er sú, að segja að í réttarheimspeki takist menn á við spurningar, sem enn eru óleystar, þótt fengizt hafi talsverð leikni og kunnátta í lögum, réttarsögu eða réttarfélagsfræði. Þannig er ekki nóg að vera góður lögfræðingur, eða réttarsagnfræðingur eða réttarfélagsfræðingur, maður verður ekki við það eitt hæfari til að leysa vandamál í réttarheimspeki. Þetta felst að sjálfsögðu í eðli þeirra spurninga, sem lögfræðin sem slík og hinar fræðigreinamar geta ekki veitt svör við, og það er einmitt þetta, sem hér verður að einhverju leyti reynt að útskýra. Spurningar þessar hefur Herbert Hart, prófessor í Ox- ford, flokkað niður í þrjá aðal flokka í grein, sem hann skrifaði um viðfangsefni réttarheimspekinnar í safnrit mikið, sem nefnist Encyclopedia of Philosophy og gefið var út í Bandaríkjunum 1967.2 Tel ég að flokkagreining þessi sé mjög til glöggvunar, en rétt er að taka það fram, að bara það að reyna að segja hver séu viðfangsefni réttar- heimepeki, er í sjálfu sér réttarheimspekilegt viðfangsefni. Þessir þrír flokkar spurninga, sem Hart setti fram, eru: 1. Spurningar um skilgreiningu eða rökgreiningu bæði Timarit lögfræðinga 5

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.