Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Page 9
hæf og ófrjó þessi aðferð hljóti að vera. T. d. er bent á,
að jafnvel þótt til séu hin skýrustu dæmi þar sem orðin
réttur og réttarkerfi eiga heima, þá séu önnur dæmi, svo
sem alþjóðaréttur og réttur frumstæðra þjóða, sem séu
um margt lík skýru dæmunum en ólík að öðru. Slikir
erfiðleikar koma víða fram í heimspeki, en þó má segja,
að skilgreining á orðinu réttur hafi sérstaka erfiðleika í
för með sér. Margir benda á, að misskilið sé, að skilgrein-
ing á liugtakinu réttur sé látin taka til greina alla notkun
orðanna lög, réttur o. s. frv. Þeir henda á, að til þess sé
ónákvæmni í notkun þessara orða of mikil og að þessi
ónákvæmni stafi af of mörgum mikilvægum og umdeild-
um atriðum. Þeir henda einnig á það, að engin þörf sé á
skýringu á almennri notkun þessara orða, heldur sé mildu
fremur þörf á rökstuddu áliti á því hvað orðin eigi að ná
yfir, og ]>á einnig að sýna l’ram á með rökum, að orð þessi
skuli ekki látin ná yfir ýmis frávik frá þvi sem allir séu
sammála um að sé réttarkerfi, réttur, lög eða lagareglur.
Það sé ekki aðeins alþjóðaréttur og réttur frumstæðra
þjóða sem séu frávik frá hinu óumdeilda, heldur megi
finna ýmis aihrigðileghei t í venjulegum réttarkerfum,
eins og t. d. reglur sem viðurlög liggja ekki við eða reglur
sem eru andstæðar meginreglum siðferðis og réttlætis.
Sumar af þessum skoðunum ganga í þá átt, að alrangt
sé og beinlínis skaðlcgt, að leitast við að koma fram með
skilgreiningu á réttarhugtakinu sem sé lilutlaus lýsing og
útskýring á því, hvernig orðin réttur, lög og réttarkerfi
eru notuð. Þeir, sem þetta segja, halda því fram, að skil-
greiningin eigi að vera uppbyggjandi (konstruktiv), þ. e.
að með skilgreiningunni megi fást skýr og ljós heildar-
mynd af einhverju sem máli skiptir. En mælkvarðinn á
því, hvaða skilgreining nái þessu marki liezt, er ekki sá,
að skilgreiningin nái yfir eða útskýri alla almenna notkun
þessara orða, heldur sá, hvort skilgreiningin nái að þjóna
einliverju fyrirfram gefnu markmiði þess, sem í hlut á,
og það getur að sjálfsögðu verið fjölbreytilegt. Þannig
Tímarit lögfræðinga
7