Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Síða 19

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Síða 19
gera þetta. Þegar ákveða þarf um sök manus er aðeins eitt, sem skiptir máli: Ilafði maðurinn visvitandi stjórn á verknaðinum og afleiðingum hans? En þegar búið er að ákveða um sökina og komið er að spurningunni, hvaða refsingu maðurinn skuli hljóta, þá koma til athugunar tilvik, sem áður voru utangarðs. Þá skiptir miklu máli, hvort maðurinn gcrði eitthvað í ákveðnum tilgangi, „hafði ásett sér að“, eða hvort hann „hara sá fram á“, að verkn- aðurinn myndi hafa ákveðnar afleiðingar í för með sér. Nú kynni einhver að segja, að það, sem hér hefur verið rakið, sé lítils virði og hafi litla hagnýta þýðingu. Komi einhver skilgreiningarvandræði upp, þá leitum við i orða- bækur, til þess séu þær, og því stærri, þeim mun fleiri spurningum leysi þær úr fyrir okkur. En þá verðum við að hafa í huga, að það er ekki unnt að fá úr orðabókum, hvernig sjá megi réttinn frá tveim sjónarhornum, spá- dóms- og skuldbindingarhornum. Ekki er heldur unnt að fá úr orðabókum samspilið milli huglægra og hlutlægra efnisþátta löggerninga. Þó verðum við að hafa þessi sjón- armið i huga, ef við ætlum að útskýra eða skilgreina hug- tökin „lagaskylda“, „réttindi“ og „löggemingur" að ein- hverju gagni. 1) Um greiningu vísindanna mætti benda á skýra framsetn- ingu Þorsteins Gylfasonar í bók hans, Tilraun urn manninn, Almenna bókafélagið 1970, bls. 90—91. 2) H. L. A. Hart, „Probelms of Legal Philosophy“, Encyclo- pedia of Philosophy, ritstýrt af Paul Edwards, The Macmillan Company: The Free Press, New York 1967. 3) Sjá Jeremy Bentham, „Essay on Logic“, í The Works of Jeremy Bentham, Edinborg 1838—1843, 8. bindi, bls. 213—293, og Fragment on Government, London 1776. 4) Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, Hlaðbúð 1965, 2. útgáfa, bls. 18. Tímarit lögfræðinga 17

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.