Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Page 20

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Page 20
Frá bæjarþingi Reykjavíkur Hér á eftir fer reifun nokkurra dóma bæjarþings Reykjavíkur á árunum 1967 og 1968. Eins og áður hafa Björn Þ. Guðmundsson og Stefán M. Stefánsson valið dómana og reifað þá. Greiðsla meðlags. M og K i'engu leyli til skilnaðar að borði og sæng með leyfisbréfi árið 1959. Samkvæmt ákvæðum þess skyldi K bafa forræði cinkabarns hjónanna, en M greiða með því meðlag til 16 ára aldurs þess, fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar. Hjónunum var veittur lögskilnaður árið 1961 með óbreyttu ákvæði um forræði barnsins og greiðslu meðlags. K fékk greidd meðlög með barninu frá Trygg- ingastofnun ríkisins þar til hún fluttist til Bandaríkjanna síðla árs 1960, þar sem hún giftist þarlendum manni. Hætti þá Tryggingastofnun ríkisins að greiða meðlög með baminu, þar sem það hafði flutzt með móður sinni vestur um haf. Með stefu, útgefinni 30. nóvember 1965, höfðaði K mál á hendur M til greiðslu ógreiddra meðlaga með barninu frá og með nóvember 1960 til og með nóvemberloka 1965, þar sem M hafði reynzt ófáanlegur til að greiða meðlögin. M byggði sýknukröfu sína á því, að búið væri að ætt- leiða barnið, sem bæri ættarnafn hins nýja eiginmanns K, og á því að barnið liafi verið flutt af landi brott með leynd. Þá var því einnig haldið fram af M, að hvorki hann né foreldrar hans hefðu fengið að sjá barnið eða fengið fréttir af því á meðan það var hér á landi. Þá mótmælti M því sérstaklega, að K yrði dæmdur málskostnaður í mál- inu, þar sem tvisvar hafi verið úrskurðað lögtak fyrir krofum K, en lögtökunum hafi i hvorugt skiptið verið 18 Timarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.