Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Blaðsíða 38
Bundin kjörgrein:
Afbrotafræði
Alþjóðl. einkam.réttur
Félagaréttur
Hagfræði
Opinber stjórnsýsla
Réttarsaga
Sjóréttur
Skattaréttur
Vátryggingaréttur
Þjóðaréttur
Umsjónarkennnari:
Jónatan Þórmundsson
óákv.
Gaukur Jörundsson
Þór Vilhjálmsson
Þór Vilhjálmsson
Sigurður Líndal
Arnljótur Björnsson
Jónatan Þórmundsson
Arnljótur Björnsson
Gunnar G. Schram
Stúdentar:
0
0
3
2
8
1
0
8
8
8
Alls 38
Hver stúdent las tvær námsgreinar, þannig að stúdentarnir voru samtals 19.
Nám og kennsla í bundnu kjörgreinunum var mismunandi. Kennslustundir
í hverri grein voru að jafnaði 4 í viku. Kennsluform og kennsluaðferðir voru
með ýmsum hætti. i flestum greinunum voru fyrirlestrar, og að auki fór
kennsla og nám fram í æfinga- og umræðutímum. Námsefni í flestum kjör-
greinanna var 300—400 blaðsíður. Kennslurit voru á íslensku og öðrum Norð-
urlandamálum, svo og á ensku. Yfirleitt voru nemendur og kennarar á einu
máli um, að þessi fyrstu námskeið í bundnum kjörgreinum hefðu tekist vel.
Tímasókn var ágæt og árangur nemenda mældur í einkunnum almennt góður.
i reglugerð segir, að í lagadeild skuli kandidatar eiga kost á að fylgjast með
kennslu fyrir stúdenta í 3. hluta, eftir því sem við verði komið. Jafnframt er tek-
ið fram, að lagadeild ákveði, hvernig kennslu fyrir kandidata skuli hagað og
að heimilt sé að gefa út vottorð um nám þeirra. Á fundi lagadeildar 18. nóvem-
ber 1974 voru settar reglur um vottorð til kandidata í samræmi við ákvæði
reglugerðar. Nokkrir kandidatar sátu kennslustundir í bundnum kjörgreinum á
haustmisserinu. Lauk einn þeirra prófi í skattarétti í desember.
2. Kjör deildarforseta
Prófessor Sigurður Líndal var kosinn forseti lagadeildar til 2 ára frá 15.
september 1974. Varaforseti deildarinnar var kjörinn Jónatan Þórmundsson,
en hann var deildarforseti um tveggja ára skeið fram að þeim tíma.
3. Nýr prófessor
Dr. Gunnar B. Schram var settur prófessor í lagadeild í fjarveru dr. Gunnars
Thoroddsen ráðherra frá prófessorsstörfum í deildinni. Gildir setningin frá 1.
október 1974 og þar til öðru vísi verður ákveðið.
4. Bókavörður í Lögbergi
Páll Skúlason, lögfræðingur, var settur bókavörður við Háskólabókasafn frá
1. maí 1974. Er þar um hálft bókavarðarstarf að ræða. Páll hafði starfað við
safndeildina í Lögbergi óslitið frá hausti 1972.
5. Lagastofnun Háskóla íslands
Lagastofnun Háskóla Islands tók til starfa á árinu. Reglugerð um hana er
nr. 190/1974. í stjórn Lagastofnunar eru prófessararnir Þór Vilhjálmsson (for-
32