Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Blaðsíða 43

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Blaðsíða 43
prófessor Þór Vilhjálmsson og regeringsrádet Ragnar Meinander, en hann var einn helsti hvatamaður þess, að ráðstefnan var haldin. Fyrsta dag þingsins var rætt um alþjóðlegan höfundarétt og helstu alþjóða- sáttmála, sem gildandi eru á þessu sviði, þ.e. Bernarsáttmálann til verndar bókmenntum og listaverkum svo og Alþjóðasáttmálann um höfundarrétt (Uni- versal Copyright Convention). Framsögumenn þennan dag voru aðalforstjóri WIPO (World Intellectual Property Organization) Arpad Bogseh, ungfrú Bar- bara Ringer, Registrar of Copyright, Bandaríkjunum, og E. P. Gavrilov frá hinni sovésku höfundaréttastofnun VAAP. í þessum ræðum vöktu einkum athygli manna upplýsingar sovéska framsögumannsins um hina nýju löggjöf sovét- manna á þessu sviði. Var svo að heyra, að rússar stefni nú hröðum skrefum í átt til einstaklingsbundins höfundaréttar, enda gerðust þeir aðilar að Al- þjóðasáttmálanum um höfundarétt á sl. ári eins og kunnugt er. Höfundarlög- gjöf þeirra er þó enn sem komið er mun ófullkomnari en víðast hvar í Vest- ur-Evrópu. Þannig greiða þeir ekki höfundalaun fyrir flutning tónlistar og bókmenntaverka í útvarpi og sjónvarpi og verk höfunda má flytja án leyfis þeirra hverju sinni (,,tvangslicens“). Hins vegar greiða sovétmenn höfunda- iaun fyrir birtingu og flutning verka utan útvarps, og virðast upphæðir höf- undalauna vera svipaðar og gerist og gengur á Vesturlöndum. Þannig er greitt frá 2—5% af seldum aðgangseyri eða samanlögðum launum flytjenda fyrir flutning tónlistar á tónleikum og tónlistarskemmtunum, og er það ekki ósvipað gjald og innheimt er hér á landi. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að hin sovéska höfundaréttarstofnun VAAP hefur þegar gert samninga við erlend höfundaréttarfélög, þ. á m. hið íslenska STEF, um gagnkvæma höfundaréttargæslu. Því er hin sovéska nýstefna í höfundaréttarmálum gerð að sérstöku um- ræðuefni hér, en einmitt í sama mund og rússar, að fenginni reynslu, hneigj- ast æ meir til einstaklingsbundins réttar á þessu sviði, hafa risið upp tveir ráðherrar sósíaldemókrata á Norðurlöndum, sem ýjað hafa að því, að höf- undarrétturinn væri úreltur og hann bæri að afnema að einhverju eða öllu leyti, eins og síðar verður vikið að. Síðari hluta hins fyrsta fundardags var rætt um „neighbouring rights" sátt- málana og þá fyrst og fremst Rómarsáttmálann frá 1961 um vernd listflytj- enda, hljómplötuframleiðenda og útvarpsstofnana. Framsögumenn um þetta efni voru jur. kand. Jukka Liedes frá Finnlandi, Ejnar Jensen, fjármálastjóri danska útvarpsins,, Rolf Rembe, framkvæmdastjóri sænsku rithöfundasam- takanna og Birger Stuevold-Lassen dósent, Noregi. Fram kom, að 16 ríki hafa þegar fullgilt Rómarsáttmálann, þ. á m. Danmörk og Svíþjóð. Sérstaka athygli vöktu þær upplýsingar Stuevold-Lassens, að allar líkur væru á, að Noregur mundi fullgilda sáttmálann á þessu ári. Þótti þetta nokkrum tíðind- um sæta, þar sem Norðmenn hafa fram að þessu farið sínar eigin leiðir í þessu efni og hallast að svonefndri „kollektívri-lausn frekar en einstaklings- bundnum rétti listflytjenda og hljómplötuframleiðenda, sem Rómarsáttmálinn hefur að leiðarljósi. island, sem var eitt þeirra landa, er undirrituðu Rómar- sáttmálann, hefur enn eigi fullgilt hann, þótt hin nýju íslensku höfundalög fullnægi öllum skilyrðum fyrir því, að svo megi verða. Á öSrum degi ráðstefnunnar, sem var tiltölulega rólegur dagur, var rætt um höfundaréttinn og tæknina („Upphovsrátten och den tekniska explosionen'1). 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.