Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Blaðsíða 31
af þessum 80 málum ? Því að hvað er dómur ? Er það íþrótt fræðimanna
eða sanngjörn efnislausn á þrætu málsaðilja?
Það er fleira, sem gert hefir verið í Bandaríkjunum til að hraða af-
greiðslu einkamál en „Small Claim“-aðferðin. Árið 1971 voru sett lög
í Pennsylvaníu um gerðardómsmeðferð einkamála (Arbitation). Sam-
kvæmt þeim lögum ber að leggja öll einkamál, sem ekki sæta „Small
Claim“ meðferð, fyrir gerðardóm, enda sé málið ekki meiri háttar
mál (Major Case), og kröfufjárhæðin 10 þús. dollarar eða lægri. Gerð-
ardómar þessir eru skipaðir þremur starfandi lögmönnum, sem bjóða
sig fram til þessarar þjónustu. Margir gerast sjálfboðaliðar, enda er
mikill fjöldi gerðardóma starfandi. Nöfn 8 sjálfboðaliða eru síðan dreg-
in út til að dæma hvert mál. Útdrátturinn fer fram í tölvu, og er for-
maðurinn dreginn sérstaklega. Gerðardómui'inn á að taka til starfa í
fyrsta lági 30 dögum eftir skipun og í síðasta lagi 60 dögum.
Meðferðin fyrir gerðardóminn er mjög frjálsleg. Aðiljar koma fyrir
dóminn (yfirleittt með lögmönnum) og gefa skýrslu. Vitni eru leidd
og jafnvel sérfræðingar, til álitsgjafar, en framburðir eru ekki ritaðir
niður, gerðardómsmenn punkta aðeins hjá sér það allra helsta. Síðan
fer ef til vill fram örstuttur málflutningur og svo er málið lagt í gerð.
Ég var viðstaddur einn slíkan gerðardómsfund, og kynntist því náið,
hvernig gerðardómsmennirnir vinna, eftir að þeir dómtaka mál. Það
var í skaðabótamáli. Hver og einn gerðardómsmaður kom fram með
sínar hugmyndir um lausn málsins. Allir stungu upp á fullri bóta-
skyldu. Hins vegar greindi þá í fyrstu á um fjártjónið, en náðu svo
málamiðlun um það. Síðan fundu þeir út miskann með því að marg-
falda fjárhagsléga tjónið með þremur. Var mér tjáð, að það væri hin
algenga viðmiðunarregla í Bandaríkjunum við ákvörðun miskabóta.
Þegar tölurnar voru fundnar, ritaði formaður dómsins þær á eyðu-
blað án alls rökstuðnings. Síðan rituðu allir gerðardómsmenn undir
og stimpluðu og þar með búið. Ef aðiljar eru óánægðir með niðurstöð-
una geta þeir áfrýjað til „Court of Common Pleas“ innan mánaðar.
Ella er gerðardómurinn aðfararhæfur. Yfirborgardómarinn í Fíladelfíu
tjáði mér, að þetta fyrirkomulag hefði gefið mjög góða raun.
Meðan ég dvaldist vestan hafs, var ég alloft viðstaddur sáttatilraun-
ir dómara með lögmönnum. Sáttatilraunirnar áttu sér yfirleitt stað
fyrir hádegi í skrifstofum dómaranna. Fóru þær þannig fram, að dóm-
ararnir kvöddu lögmenn fyrir sig og báðu lögmenn sóknaraðilja að
lýsa málavöxtum, því að dómarar eru ekki búnir að kynna sér málin
fyrirfram. Síðan gáfu dómararnir lögmanni varnaraðilja tækifæri til
að gera athugasemdir við málavaxtalýsingu lögmanns stefnda. Eftir
25