Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 5
voru settar þjálar reglur um byggðasamlög, héraðsnefndir og um sameiningu sveitarfélaga sem hafa gefið góða raun það sem af er. Nú verður að viðurkenna þau sjónarmið að sjálfræði sveitarfélaga sé háð því að sveitarfélögin séu nógu fjölmenn og burðamikil til að valda stjórnsýsluverk- efnum sem til þeirra kunna að verða lögð. A hinu leytinu er og augljóst eins og samgöngum og fjarskiptatækni er nú háttað að sýslumenn hafa enga þörf fyrir umboðsmann í hverjum hreppi og verði sveitarfélögum fækkað svo að umdæmi þeirra falli í aðalatriðum saman við sýsluskiptingu ríkisins er augljóst að taka verður til róttækrar endurskoðunar það skipulag sem gerir kleift að færa þjónustu sýslumanna til fólks vítt og breitt um víðfeðm umdæmi. Hinsvegar er álitaefni hvort þeim markmiðum að skipan sveitarstjórnarmála og stjórnsýsla ríkisins í héraði verði færð til samræmis við þarfir tímans verði ekki náð án þess að fórna gömlum og góðum stjórnsýslustofnunum. Engan veginn er útséð um að takast megi á grundvelli núverandi sveitarstjórn- arskipunar að koma því til leiðar að sveitarfélögin nái nægum styrk með sameiningu og samvinnu til að taka á sig og fara með mikilvæg verkefni. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga 8 1986 er lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags 50 og skv. 3. mgr. 58. gr. getur sveitarstjórn kosið nefnd til að fara með afmörkuð mál í hluta sveitarfélags. Á grundvelli þessara ákvæða mætti strax hækka lágmarkstöl- una í 200-400 með það í huga að hún yrði aukin enn frekar síðar, ef þurfa þætti. Með þessu yrði ýtt á um sameiningu smæstu sveitarfélaganna. Á grundvelli ákvæða 58. gr. væri hægt að ákveða að í hluta sveitarfélags mætti kjósa hreppsnefnd eða hverfisstjórn sem færi með mál er varða næsta nágrenni íbúanna og ætla þeim markaða tekjustofna og rétt til tekjuöflunar á eigin vegum. Með þessu móti yrði margt unnið í senn. Tregða á sameiningu mundi minnka og komið væri til móts við eðlilegar óskir manna um að fá að halda rótgrónum samtökum sínum tengdum eðlilegri skiptingu landsbyggðarinnar í byggðarlög. Jafnframt fengju íbúar þéttbýlisins kærkomið tækifæri til að hafa áhrif á málefni sem varða næsta nágrenni þeirra, en fyrst og fremst yrði þessi skipan til að efla raunverulegt lýðræði í landinu. Verkefni hreppsnefnda og hverfisstjórna gæti t.d. verið á sviði æskulýðsmála, dagleg stjórn og rekstur samkomuhúsa, íþróttamannvirkja og skemmtigarða og að skapa eðlileg skilyrði fyrir félagsstarf- semi innan sveitar eða hverfis. Best færi á að störf í nefndum þessum væru ólaunuð eins og stjórnarstörf í áhugafélögum, og ekki ætti að þurfa að greiða fé úr sveitarsjóði fyrir fundaaðstöðu eða skrifstofuhald vegna þeirra. Varðandi stjórnsýslu ríkisins er það lykilatriði að engar nauðir reka til að hún sé skipulögð á grundvelli sveitarstjórnarskipunarinnar og háð henni eins og nú er þannig að sameining eða skipting sveitarfélaga hafi sjálfkrafa áhrif á skipan umboðsstjórnarinnar. Það er heldur ekki viðunandi að annaðhvort skuli vera 235
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.