Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 8
öðrum orðum, að ætlast sé til meiri aðgæslu en raunhæft er að búast við af mennskum mönnum. I slíkum tilvikum má halda því fram, að bótaábyrgð sé í raun þyngri en eftir sakarreglunni, jafnvel þyngri en þegar henni er beitt með ströngu sakarmati. Einnig má þyngja bótaábyrgð á sakargrundvelli á annan hátt, þ.e. með því að draga úr kröfum um sönnun eða jafnvel að fella sönnunarbyrði alveg á þann, sem sóttur er til greiðslu bóta. Séu kröfur til manna um gætilega hegðun hertar óvenjulega mikið eða vikið mjög frá venjulegum sönnunarreglum, nálgast ábyrgð hins bótaskylda hreina hlutlæga ábyrgð, þ.e. ábyrgð, sem stofnast án tillits til þess, hvort tjón verður rakið til sakar. I erindinu „Nokkur sjónarmið í skaðabótarétti", sem flutt var á hátíðisdegi laganema 1963 og prentað í Úlfljóti sama ár, fjallar Gizur Bergsteinsson m.a. um mat á gáleysi eftir sakarreglunni.1 Hann víkur einnig að því, sem hann nefnir „rýmkaða gáleysisreglu". Mun það vera í fyrsta sinn, sem það hugtak er notað í íslenskum lögfræðiritum. Ekki skilgreinir höfundur hugtakið, sem hann virðist nota bæði um það þegar kröfur til manna um aðgát eru hertar að mun (U 1955.992, sem vitnað er til á bls. 105) og þegar vikið er frá almennum reglum um sönnunarbyrði, hvort tveggja í því skyni að þyngja bótaábyrgð á tjóni í hættulegum rekstri (H 1953, 617, „Þyrilsdómurinn“ og U 1960.576, en til þessara dóma vitnar hann á bls. 104 og 105). Þó að höfundur skilgreini ekki hugtakið „rýmkuð gáleysisregla“ sýnist þó mega ráða af greinargerð hans, að hann telji það út af fyrir sig ekki vera rýmkun reglunnar, er dómstólar gera ríkar kröfur til manna um gætilega hegðun á einstökum athafnasviðum. Höfundur er fáorður um hvenær rýmkuð sakarregla sé notuð eða hvenær rök séu til að nota hana. Á tveim stöðum í grein hans (bls. 91 og 92) kemur fram, að rétt geti verið að beita rýmkaðri gáleysisreglu (rýmka gáleysisregluna), þegar tjón hlýst af hættulegum tækjum eða efnum. Hann getur ekki um önnur svið, sem hann telur æskilegt nota rýmkaða sakarreglu á. Ekki er Gizur Bergsteinsson einn um að skýra ekki til hlítar við hvað er átt með rýmkun sakarreglunnar, því að svo er að sjá sem í norrænum lögfræðiritum komi yfirleitt ekki fram greinileg afmörkun á hugtökum, þegar fjallað er um hertar kröfur um varkárni eða aðrar aðferðir, sem dómstólar nota er þeir beita sakarreglunni þannig, að bótaábyrgð nálgast það að vera hlutlæg. I dönskum ritum um skaðabótarétt er oft talað um strangt (streng) sakarmat gagnstætt mildu (mild eða lempelig) mati í þeirri merkingu að kröfur um aðgæslu eru ríkar eða eftir atvikum vægar.2 Strangt mat þarf þá ekki að merkja að dómari geri óvenjumiklar eða „óeðlilega“ ríkar kröfur um aðgát. Dönsku orðasamböndin „skærpet culpabedpmmelse" og „skærpelse af culpareglen“ ‘Gizur Bergsteinsson, bls. 87-108. !M.a. Vinding Kruse, bls. 98. 238
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.