Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 42
vonum mælst vel fyrir, og verður vonandi framhald á þeim. Ásdís hefur í
samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins unnið að tveimur nýjum verkefnum,
sem eiga eftir að bæta úr mikilli þörf: Ljósritun eldri hefta, sem orðin eru
ófáanleg, og samning heildarregisturs frá upphafi.
V. Lögfræðingatal
Stjórnin fól sérstakri ritnefnd að annast undirbúning Lögfræðingatalsins, sem
getið var um á síðasta aðalfundi. Skúli Guðmundsson varaformaður og Dögg
Pálsdóttir gjaldkeri, sem ætíð hafa verið miklir áhugamenn um verkið, voru
kjörin í nefndina ásamt formanni.
í samráði við ritstjóra verksins, Gunnlaug Haraldsson og útgefandann, Iðunni
hf., voru send út spurningaeyðublöð til félagsmanna í marz sl., alls 1011.
Ritnefndarmenn gerðu sér vonir um góð skil félagsmanna og reyndust þær vonir
eiga við um all marga. Því miður hafa þó nokkrir ekki skilað enn, en skil eru nú
um 80%. Staðreyndin er sú að þetta tefur útkomu ritsins, og er útilokað að það
verði jólabók lögfræðinga í ár, og áætlaður útkomutími er nú snemma á næsta
ári. Biðjum við félagsmenn að stuðla að útkomu ritsins með því að skila inn
framtölum sínum og myndum hið allra fyrsta og spilla ekki lengur fyrir því að
menn geti handleikið þennan mikla fjársjóð.
Nú hafa verið sendar út prófarkir til aðstandenda látinna lögfræðinga, og
bráðlega verða sendar út prófarkir til þeirra sem skilað hafa, til þess að unnt sé
að fara yfir það sem skráð hefur verið.
VI. Aðild að BHM. Samstarf við lögfræðingafélög á Norðurlöndum
Eins og getið var um á síðasta aðalfundi voru í framhaldi af boði á árlegan fund
framkvæmdastjórna lögfræðingafélaga á Norðurlöndum rædd hugsanleg, nán-
ari tengsl félagsins við þessi félög. Boð kom frá lögfræðingafélaginu í Dan-
mörku um að senda fulltrúa á ársfundinn, sem haldinn var í ágúst. Ragnhildur
framkvæmdastjóri sótti fundinn af hálfu félagsins. Skýrði hún stjórninni frá því
að þess væri óskað af hálfu framkvæmdastjórna félaganna á Norðurlöndum að
halda fundinn hér á landi á næsta ári, og beiðst væri liðsinnis félagsins í þeim
efnum, án nokkurra fjárhagslegra skuldbindinga. Kemur í hlut næstu stjórnar að
skoða þessi mál. í þessu sambandi var rætt innan stjórnarinnar, að fjárhagur
félagsins leyfði ekki mikil útgjöld vegna hugsanlegra funda og ferðalaga, sem
nánari samvinna myndi krefjast, þegar enn rynni til BHM stór hluti félagsgjalda,
sem einmitt ætti að nýtast til þessara hluta. Tók stjórnin því ákvörðun um að
hrinda í framkvæmd úrsögn þeirri, að undangenginni allsherjaratkvæða-
greiðslu, sem fjallað var um á félagsfundi 18. september 1990. Vegna reglna
BHM um að úrsögn verði að berast fyrir 1. október til þess að hún öðlist gildi
272