Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 11

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 11
Hér er gott dæmi um að „oft veltir lítil þúfa þungu hlassi". Eyrað á hleranum var aðeins örfáir cm á hvern veg. Varla var unnt að sjá fyrir, að það gæti valdið slysi. Deila má um, hvort ábyrgð útgerðarmanns er hlutlæg eða reist á sakargrundvelli.11 Ef dómarar hafa talið vanbúnaðinn afleiðingu saknæmrar hegðunar, er enginn vafi á að sakarmat er strangt. Ljóst er, að mikil hætta er á slysi, ef eitthvað fer úrskeiðis við meðferð víra á dráttarbát sem þessum. H1975, 640. Umbúnaður í vélarrúmi b/v „Ingólfs Arnarsonar“ I var 3. vélstjóri á nýsköpunartogaranum „Ingólfi Arnarsyni", sem var í eigu B. Þegar I var að þvo loft í vélarrúminu slasaðist hann við það að falla niður á gólf af rist, sem hann stóð á. I taldi sig hafa fengið aðsvif. Að mati héraðsdóms, sem skipaður var vélfróðum meðdómendum, er mikil hætta á að kyrrstætt loft safnist á stað þeim, er I vann á. Þar verði mjög heitt þá er vélar skipsins eru í gangi. Slysið þótti mega rekja til ófullnægjandi loftræstingar og óbrúaðs bils, sem I féll niður um. Umbúnaður þessi þótti ótryggilegur, enda var byggt yfir opið eftir slysið. Var B því dæmt að greiða I óskertar bætur fyrir tjónið, enda kom ekkert fram um gáleysi af hálfu I. Slysið varð í desember 1969, en skipið var smíðað 1947.!: Mál þetta er líkt málinu um slysið á „Magna“ að því leyti, að ábyrgð var lögð á útgerðarmann vegna búnaðar, sem verið hafði í skipinu frá upphafi, og virtist hættulítill. Tekið er fram í héraðsdómi, að litlir möguleikar hafi verið á því, að maður með fullri meðvitund félli niður um opið, sem þarna var fyrir stækkun ristarinnar. Öðru máli gegndi, ef um væri að ræða meðvitundarlausan eða meðvitundarlítinn mann. í þessu máli, eins og í „Magnamálinu“ er álitamál, hvort ábyrgð útgerðarmanns er hlutlæg eða reist á sök. H1966, 22. Gallaður tréplanki notaður við kirkjusmíði Við smíði kirkjuturns úr timbri stóðu smiðir á trjám, sem voru svo óhrein, að erfitt var að sjá hvort þau voru gallalaus. Það var talin vangæsla, að verkstjóri lét þetta viðgangast. B slasaðist er tréplanki, 2x4 þumlungar að gildleika, brotnaði undan honum. í plankanum var brestur, sem ekki sást fyrr en eftir slysið. B var lærður trésmiður og hafði um langt árabil starfað að húsasmíðum og stundum veitt bygginga- framkvæmdum forstöðu. Talið var, að B hefði mátt vera ljóst, að óvarlegt var að standa á einu tré, sérstaklega þegar þess var gætt, sem áður segir um erfiðleika á að gera sér grein fyrir ástandi plankans. Vinnuveitanda var dæmt að bæta helming tjóns B. Sá, sem slasaðist, var gamalreyndur smiður og virðist því ekki hafa verið þörf á sérstökum leiðbeiningum af hálfu verkstjóra. Samt sem áður taldi Hæstiréttur einróma, að verkstjóri hafi gerst sekur um vangæslu um eftirlit með smíðinni. “Um dóminn sjá Arnljótur Björnsson (1979), bls. 192-3 (=1990, bls. 75-6). 12Skrá yfir íslensk skip 1970, bls. 82. 241

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.