Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 40
5. Laugardagsmorguninn 21. marz var sú nýbreytni upp tekin að hafa
morgunverðarfund eða Orðræður yfir morgunkaffi. Þar flutti Þór Vil-
hjálmsson hæstaréttardómari inngangsorð um efnið „Geta dómarar
svarað opinberri gagnrýni?“
Fundargestir voru 37.
6. Hinn 30. maí var skundað á Þingvöll. Þar leiddi Sigurður Líndal prófessor
félagsmenn og fjölskyldur þeirra um vellina og flutti erindi um þingstað-
inn.
Þátttakendur voru 35.
7. Opinn borgarafundur var haldinn 20. júní í samvinnu við Ríkisútvarpið
Rás 1. Þar fluttu Davíð Þór Björgvinsson dósent og Guðmundur Alfreðs-
son lögfræðingur hjá Sameinuðu þjóðunum framsögu um efnið „Þarf að
breyta stjórnarskránni vegna EES-samningsins?“
Þátttakendur í hringborði voru auk frummælenda þau Lilja Ólafsdóttir
sendiráðunautur, Ragnar Aðalsteinsson hrl., Stefán G. Þórisson cand.
jur. og Eiríkur Tómasson hrl., sem stjórnaði umræðunum.
Fundargestir voru 95.
Almennir fundir voru haldnir í Lögbergi að venju. Morgunverðarfundurinn
var haldinn í fundarsal á efstu hæð að Holiday Inn, en kvöldverðarfundurinn var
haldinn í Hvammi þessa sama hótels. Opni borgarafundurinn, sem var útvarpað
beint til hlustenda ríkisútvarpsins, var haldinn í Súlnasal Hótel Sögu. Enn var
nýr fundarstaður við hæfi, Lögberg á Þingvöllum, þar sem Sigurður flutti erindi
sitt.
8. Málþing félagsins var að þessu sinni haldið á Hótel Selfossi laugardaginn
10. október 1992, og stóð frá kl. 10.00 til 17.30, er léttar veitingar tóku
við.
Efni þingsins var „Samningurinn um hið evrópska efnahagssvæði“ og var dr.
Gunnar G. Schram prófessor fundarstjóri. Fyrir hádegi fluttu framsögu Gunnar
Snorri Gunnarsson skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins,
Pétur G. Thorsteinsson sendifulltrúi, Lilja Ólafsdóttir sendiráðunautur og
Kristinn Árnason sendiráðunautur. Eftir hádegisverð hófst vinna í hópum.
Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri stjórnaði einum og þar fluttu erindi auk hans
þeir Tryggvi Gunnarsson hrl., Bendedikt Guðbjartsson forstöðumaður lög-
fræðideildar Landsbanka íslands, Jóhann Albertsson deildarstjóri í Bankaeftir-
liti og Sigmar Ármannsson framkvæmdastjóri Sambands ísl. tryggingafélaga.
Öðrum hópi stjórnaði Stefán Már Stefánsson prófessor og töluðu þar auk hans
þau Brynja Hafsteinsdóttir lögfræðingur hjá Verðlagsstofnun, Stefán G. Þóris-
son hdl. og Páll Ásgrímsson lögfræðingur í viðskiptaráðuneyti. Hinum þriðja
hópi stjórnaði Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðu-
270