Ægir - 01.11.1995, Síða 5
Blátún hf. er lítið fiskverkunarfyrir-
tæki við Grandatröð í Hafnarfirði. Það
er nú á fjórða starfsári og hefur því trú-
lega þegar lifað af sviptivinda hinna
fyrstu starfsára og er komið á nokkuð
lygnan sjó. Lárus Björnsson á og rekur
Blátún hf. ásamt fjölskyldu sinni. Hann
útskrifaðist úr Fiskvinnsluskólanum
1976 og eins og margir aðrir vann hann
um árabil fyrir aðra uns hann lét
drauminn rætast og stofnaöi sitt eigið
fyrirtæki. Ægir fór í heimsókn til Lárus-
ar og fékk að skyggnast inn í veröld
smáfyrirtækis í fiskiðnaði.
Steinbíturinn er rándýr
„Hérna vinna fimm til átta manns,
fyrir utan mig og verkstjóra sem sér um
vinnsluna, en það sveiflast svolítið til
eftir árstímum. Við erum bara í fryst-
ingu og höfum reynt að sérhæfa okkur í
vinnslu á steinbít. Það er reyndar ekki
alltaf sem það er hægt því framboð á
steinbit er til dæmis lítið um þessar
mundir og margir um hituna svo verðið
er hátt," sagði Lárus í samtali við Ægi.
Steinbíturinn er árstíðabundin
skepna sem veiðist best á hefðbundinni
steinbítsvertíð á timabilinu febrúar til
og með maí og þekktustu veiðislóöir
hans eru út af Vestfjörðum og hann
þykir reyndar bestur til vinnslu fram
eftir sumri. Utan hefðbundins veiðitíma
veiðist hann helst sem meðafli í troll og
dragnót.
„Þegar ég fæ ekki nógu mikinn stein-
bít eins og hefur verið undanfarið þá för-
um við helst yfir í undirmálsþorsk og
lýsu en við getum unnið nánast hvaða
fisktegund sem er. Ástæðan fyrir því að
við viljum smáþorsk og lýsu er sú að við
erum meö vél sem flakar smáan fisk."
Lýsan er utankvótafiskur, náskyld ýs-
unni en að jafnaði smærri. Lýsuaflinn er
varla til skiptanna en hann var aðeins
315 tonn árið 1994 skv. Útvegi Fiski-
félags íslands. Lárus segir að henni sé
ekki sýnd mikil virðing og nokkuð erfitt
sé að koma henni í verð. Hún fæst
þannig helst ekki seld gegnum Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna sem annars selur
stærstan hluta af framleiðslu Blátúns hf.
„Lýsan er varla til á skrá hjá SH og
lítið spurt um hana. Steinbíturinn selst
vel hins vegar og fer ýmist á markað í
Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjun-
um. Hann er mismunandi mikið snyrt-
ur fyrir hina ýmsu markaði. Bandaríkja-
markaður vill fá hann roð- og beinlaus-
an, nánast tilbúinn á pönnuna, en
hann fer minna snyrtur á Frakkland og
Þýskaland."
Hvernig er verðið á steinbítnum?
„Það hefur verið gott á Ameríku-
markaði, sérstaklega í sumar og haust,
en það hefur varla verið hægt að sinna
honum vegna hráefnisskorts. Verðið er
lægra á Evrópumarkaði.
Staðreyndin er sú að síðustu vikur og
mánuði hefur verbið á steinbítnum ver-
ið svo hátt á fiskmörkuðum hér heima
ab það hefur ekki verið stætt á því að
vinna hann á Evrópumarkað. Hann
kostar núna yfirleitt 90 til 120 krónur
kílóið en lækkar aftur þegar meira fer að
veiðast af honum. Hann fellur niður í
60 til 80 krónur kílóið í vetur.
Ég kaupi helst ekki steinbítinn á
svona háu verði heldur leita í aðrar teg-
undir. Þetta er alfarið markaðslögmál og
ég held ab þeir sem kaupa hann á þessu
verði geti varla haft mikinn arð af
vinnslunni."
Fjarlægðin skiptir minna máli
Nú er steinbítsveiði einkum stunduð á
Vestfjörðum og hans helstu mið eru þar
fyrir ströndum. Vœri betra fyrir þig að
vera nœr veiðisvœðunum með þitt fyrir-
tœki?
„Þaö skiptir minna máli. Við erum
stundum að kaupa steinbít frá Patreks-
firði því fjarlægðirnar skipta ekki eins
rniklu máli og áður. Menn versla hvar
sem er og flytja fiskinn hvert sem er,
þvers og kruss um landið.
Það má segja að byggðasjónarmið
komi þessu máli ekki við. Það eru engar
hömlur á viðskiptum og eiga ekki að
vera. Það sést best á því að það eru kom-
in fram fyrirtæki sem sérhæfa sig í fisk-
flutningum milli landshluta."
Þarf að geta lifað af þessu
Nú hefur þú rekið þetta fyrirtœki í
ncestum fjögur ár og gengur þokkalega.
Er tilvist ykkar trygg?
„Já, ég vona það. Þetta skilar alltaf
einhverjum hagnaði en aðalatriðið er
að hafa vinnu við þetta og getað lifað af
þessu og endurnýjað tæki og búnað.
Mikiö meira fer ég ekki fram á."
Er þetta heppileg stœrð af fyrirtœki
eða vildir þú stœkka við þig?
„Það eru margir kostir við þessa
stærð. Ef þetta væri stærra þá færi yfir-
byggingin strax að vaxa. Hér vinna allir
öll störf, það er nauðsynlegt. Ég vinn i
þessu sjálfur en annast auk þess öll inn-
kaup á mörkuðunum, sæki umbúðir,
skipa út, sendist í banka og sé um skrif-
stofuhaldið.
Þetta gengur best svona og það þýbir
ekkert fyrir mig að vera í hvítri skyrtu
með bindi um hálsinn í vinnunni.
ÆGIR 5