Ægir - 01.01.1997, Qupperneq 39
túpa er frá Rafhitun, gerð RH 32306,1,2
KW, 210 L. Vélarúmsblásari er frá Trans-
motor, 46 m3/mín. Landtengispennir er
frá Spennubreytum, gerð LTS 12 KVA.
Rafkerfi bátsins er öflugt 3x220 V kerf,i
en stærri rafmagnstæki, þ.e. dælur og
fleira, eru tengd þriggja fasa tengingu
en ljós og minni tæki eru tengd einfasa
tengingu. Rafmagnstafla er frá Pólnum
hf.. Samkeyrsla rafala er ekki í bátnum.
Slökkvikerfi fyrir vélarúm er kolsýru-
kerfi, C02.
íbúðir eru hitaðar með vatnsofnum
sem fá varma frá aðalvél, ljósavél eða
vatnshitatúpu og loftræstar með raf-
drifnum blásara. Eitt vatnsþrýstikerfi er
í bátnum og tengist hitatúpu. Báturinn
er einangraöur með steinull.
Vindubúnaður
Vindubúnaður bátsins er vökvaknúinn,
háþrýstikerfi, og er um að ræða tvær
togvindur frá Ósey hf.. Ein hjálparvinda
(rússavinda) er frá vélaverkstæði Sigurð-
ar og þrjár bómuvindur frá Pullmaster.
Tromlumál á togvindum er D 1100
mm. x d 220 mm. x br. 720 mm.. Tog-
átak á tóma tromlu er 6,1 tonn. Togátak
á hjálparvindu (rússavindu) er 1,0 tonn.
Bómu- og hífingarvinda eru hvor
með 1,8 tonna togátak, bómusvingari
er með 1,0 tonna togátak.
Vökvaþrýstidæla fyrir vindur og
spjaldadæla eru frá Denison af gerðinni
T 6 CC sem skilar 150 L/mín. og kerfis-
þrýstingur er 210 bar. Akkeri tengist vír
á togvindu. Togblakkir með viralengdar-
mælum og átakssellum eru frá íslenskri
vöruþróun hf.
Tæki í stýrishúsi
Ratsjá Furuno RDP-104
Seguláttaviti John Lilley
Sjálfstýring Furuno FAP-300
G.RS. og leiðariti Furuno GP-1800
G.P.S. leiðréttingatæki Furuno FBX-II
Dýptarmælir Hondex HE-721-H
Höfuðlínumælir Furuno CN-2010
Talstöð Furuno FM-2520
Stjórnbúnaður fyrir togblakkir Trawl Tec 1500
Af öðrum tækjabúnaði má nefna brunaviðvörunarkerfi og björgunargalla. Aftast í stýrishúsi er stjórnun á togvindum.
Öskum útgero og áhöfn
SANDVÍKUR SK 188
farsældar og fengsællar framtíðar
Meo kveðju
OSEY • HVAL
220 HAFNARF
SÍMI: 565 232
SEy
Amtsbókasafnið a Akureyri
03 586 344