Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 5
Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri:
Ægir og íslenskur
sjávarútvegur í 90 ár
)
/
jl / þessu ári fögnum við hjá
» / I / Fiskifélagi íslands og Ægi
90. árgangi tímaritsins
Ægis, stolti okkar og burðarbita í út-
gáfu Fiskifélags íslands frá 1912. Af
framsýni og dugnaði ýtti Matthías
Þórðarson frá Móum útgáfunni úr
vör árið 1905, en frá árinu 1912 hef-
ur útgáfan verið hjá Fiskifélagi ís-
lands. Síðan þá hefur útgáfan verið
óslitin og árgangar blaðsins fylla nú
níunda tuginn. í tilefni af afmælisár-
gangi er blaðið að þessu sinni stærra
í sniðum en venja er til og margt af
efni blaðsins tengt þessum tímamót-
um. Tímaritið Ægir hefur svo sann-
arlega átt samleið með íslenskum
sjávarútvegi á þessum 90 árum og
saga sjávarútvegsins á þessum tíma
er varðveitt á síðum blaðsins, skráð
eins og hún gerðist á hverjum tíma.
Á tímamótum er bæði fróðlegt, og
ekki síður hollt, að líta um öxl og
skoða farinn veg. Aldarinnar sem nú
er senn að líða verður minnst sem
tímabils mikilla sveiflna en um leið
þeirrar aldar þegar sjávarútvegur,
grunnatvinnuvegur þjóðarinnar, vél-
og tæknivæddist og tók ekki bara
nokkur skref heldur stærðarstökk
fram á við og varð í raun það fjöregg
sem rómuð velmegun landsmanna
er byggð á.
Hér í blaðinu er að þessu sinni
rakið í stuttu máli helstu atriði sjáv-
arútvegsins á íslandi á undangengn-
um 90 árum og jafnframt er varpað
kastljósi á þessum tímamótum á það
starf sem óumdeilanlega hefur snert
mjög þróunina á undanförnum
árum, þ.e. rannsóknar- og vísinda-
starf Hafrannsóknarstofnunar og
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins. En að sönnu er ekki hægt að
gera tæmandi yfirlit yfir sjávarútveg-
inn í jafn stuttu máli því engin at-
vinnugrein á íslandi er jafn fjöl-
breytt og viðamikil.
En um leið og þessi orð eru rituð
verður ekki hjá komist að nefna
Fiskifélag íslands, sem einn þann
hvata til framfara er leiddi til þessar-
ar þróunar. Fiskifélag íslands má
muna sinn fífil fegurri og starfsemi
félgsins í dag er ekki nema örlítið
brot af því þegar mest var umleikis
hjá félaginu, en félagið býr að góð-
um grunni sem margir mætir menn
hafa lagt og Fiskifélag íslands á enn í
dag marga góða stuðningsmenn í
sjávarútvegi. Fiskifélag íslands lifir
ekki af fornri frægð og er félagið að
finna sér grunn til aukinna starfa í
sjávarútvegi eftir samdrátt á síðasta
áratug og eru umhverfismál þar ofar-
lega á lista ásamt upplýsinga- og
fræðslumálum. Fiskifélag íslands
mun á næstu árum beina kröftum
sínum að þessum málaflokkum og
vill í því sambandi efla útgáfustarf-
semi sína og upplýsingamiðlun. Má
nefna að í árslok verður hægt að
nálgast upplýsingar um umhverfis-
mál og almenn talnaleg gögn um ís-
lenskan sjávarútveg á heimasíðu
Fiskifélags fslands á alnetinu
(http//fiskifelag.is). Þá eru fyrirhug-
aðar breytingar á skipulagi félagsins
þannig að það falli betur að þeirri
sérhæfðu hagsmunavörslu ólíkra
hópa í sjávarútvegi, sem tíðkast í
dag.
Það er mjög mikilvægt fyrir ís-
lenskan sjávarútveg að eiga gamal-
gróið félag eins og Fiskifélag fslands,
félag sem hvergi á sinn líka í heim-
inum, félag sem er vettvangur allra
aðila innan sjávarútvegs og á að geta
sameinað allar raddir sjávarútvegs
og myndað sterka heild gagnvart
umheiminum, stjórnvöldum og ekki
síst hagsmunasamtökum í öðrum at-
vinnugreinum. Því verður að lagfæra
það hjól sem áður snérist vel og
vann mikið gagn, þannig að það geti
enn á ný orðið að liði og geti með
virkri þáttöku hagsmunaaðila í sjáv-
arútvegi, farið sem samnefnari í far-
arbroddi samfylkingar í íslenskum
sjávarútvegi inn í nýja öld.
ÆG,IR 5